Rafmagnið fór af hér á Skaganum í
hálftíma í gærkvöldi. Þetta gerist ekki oft og kenni ég Önnu minni
alfarið um þetta en hún hefði stýrt tölvunum í Orkuveitunni af öryggi í
gær ef hún væri ekki í sumarfríi núna. Hvað gerir
maður ekki í ofboði sínu þegar allt er hrifsað frá manni? Jú, ég fór að
þvo spjarir á þvottabretti, strokka smjör, súrsa slátur og þess háttar
og ég var ekki fyrr búin að búa mér til kaffi með hlóðabragði þegar
rafmagnið kom á aftur. Erfðaprinsinn hafði þá handskorið ýmsa hluti og
var að útbúa brúðuleikhús inni í sjónvarpstækinu. Hann er enn að reyna
að púsla sjónvarpsinnvolsinu saman.
Hér í himnaríki hefur illa gengið að sofa út,
hryllingsandlitið vekur eldsnemma og heimtar sitt krem! Lítið lát er á
bólgu og kláða og langar mig mest að leggjast inn á spítala með íbúfen
í æð ... Jamm, þetta var væl dagsins. Verst að við Mette-Marit erum
ekki í sambandi, þá gæti ég spurt hana hvað bataferli hennar tók langan
tíma þarna 2002. Ég veit auðvitað að hún myndi fara að væla um
hornhimnubrunann sem hún fékk líka og gera lítið úr hinu. Doktor
Sigríður sagði að það tæki fimmtudaginn og helgina að ná fyrri fegurð
og nú er langt liðið á sunnudag, a.m.k. miðað við
A-manneskju-fótaferðatímann þessa dagana.
Boldið er alltaf jafnspennandi.
Thorne vill fara með samband þeirra Taylor yfir á næsta stig (fara að
sofa hjá henni) og hún virðist bera tilfinningar til hans líka. Eric,
pabbi Thornes, segir við Stefaníu, konu sína og mömmu Thornes, að hann
sé eitthvað stressaður yfir samdrætti þeirra, enda svo stutt síðan
Thorne
varð ekkill, en Stefanía róar hann niður. Í þann mund kemur Thorne
sjálfur og virðist vera að springa úr hamingju eftir rómantískt
matarboðið með Taylor. „Mamma,“ segir hann, „ég er þér þakklátur fyrir
að hafa látið mig hætta að leita að morðingja Dörlu og horfa fram á
veginn.“ Morðinginn Taylor hefur það ekki jafnkósí því að
garðyrkjumaðurinn er búinn að opna sig fyrir henni og líka Phoebe,
dóttur hennar, Hectori slökkviliðsmanni og öðrum ungum manni og segist
hafa orðið vitni að slysinu sem kostaði konu Thornes lífið. Taylor
geðlæknir fær kast og ætlar enn einu sinni að viðurkenna allt fyrir
Thorne þótt nú hafi bæst nýr einstaklingur við sem gæti endað í
fangelsi fyrir samsekt, eða garðyrkjumaðurinn sjálfur. Hann lofar að
steinþegja og vill ekki krónu fyrir það þótt ætlun hans hafi reyndar
verið sú í upphafi að fá milljón dollara. Hector hneggjar af hneykslan
og trúir engu sem kvikindið segir þeim.
Eftir að Brooke og Nick giftu sig aftur,
eða endurnýjuðu heitin, eru þau að springa úr hamingju. Nick hefur þó
áhyggjur af því að vera búinn að barna fyrrum eiginkonu sína og
núverandi stjúpdóttur, hana Bridget. Brooke fær örugglega að vita
fljótlega að hún er að verða amma stjúpsbarns síns. Verst að hún var
búin að lofa Donnu, systur sinni, að Ridge væri endanlega horfinn úr
hjarta hennar og gaf systu veiðileyfi á Ridge, með trega þó. Brooke
sagðist vera svo örugg með Nick, hann myndi aldrei svíkja hana eins og
Ridge gerði ... hahaha. Hún veit auðvitað ekki að þegar hún kyssti
Ridge oggulítið á dögunum og það fréttist með ljóshraða innan
fjölskyldunnar þá fór Nick og svaf hjá Bridget ... og barnaði hana.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
