Rafmagnið fór af hér á Skaganum í hálftíma í gærkvöldi. Þetta gerist ekki
oft og kenni ég Önnu minni alfarið um þetta en hún hefði stýrt tölvunum í Orkuveitunni af öryggi í gær ef hún væri ekki í sumarfríi núna. Hvað gerir
maður ekki í ofboði sínu þegar allt er hrifsað frá manni? Jú, ég fór að þvo spjarir
á þvottabretti, strokka smjör, súrsa slátur og þess háttar og ég var ekki fyrr
búin að búa mér til kaffi með hlóðabragði þegar rafmagnið kom á aftur.
Erfðaprinsinn hafði þá handskorið ýmsa hluti og var að útbúa brúðuleikhús inni í
sjónvarpstækinu. Hann er enn að reyna að púsla sjónvarpsinnvolsinu saman.
Hér í himnaríki hefur illa gengið að sofa út, hryllingsandlitið vekur eldsnemma og
heimtar sitt krem! Lítið lát er á bólgu og kláða og langar mig mest að leggjast
inn á spítala með íbúfen í æð ... Jamm, þetta var væl dagsins. Verst að við
Mette-Marit erum ekki í sambandi, þá gæti ég spurt hana hvað bataferli hennar tók
langan tíma þarna 2002. Ég veit auðvitað að hún myndi fara að væla um
hornhimnubrunann sem hún fékk líka og gera lítið úr hinu. Doktor Sigríður sagði
að það tæki fimmtudaginn og helgina að ná fyrri fegurð og nú er langt liðið á sunnudag, a.m.k.
miðað við A-manneskju-fótaferðatímann þessa dagana.
Boldið er alltaf jafnspennandi. Thorne vill fara með samband þeirra
Taylor yfir á næsta stig (fara að sofa hjá henni) og hún virðist bera
tilfinningar til hans líka. Eric, pabbi Thornes, segir við Stefaníu, konu sína
og mömmu Thornes, að hann sé eitthvað stressaður yfir samdrætti þeirra, enda
svo stutt síðan
Thorne varð ekkill, en Stefanía róar hann niður. Í þann mund
kemur Thorne sjálfur og virðist vera að springa úr hamingju eftir rómantískt
matarboðið með Taylor. „Mamma,“ segir hann, „ég er þér þakklátur fyrir að hafa
látið mig hætta að leita að morðingja Dörlu og horfa fram á veginn.“ Morðinginn
Taylor hefur það ekki jafnkósí því að garðyrkjumaðurinn er búinn að opna sig
fyrir henni og líka Phoebe, dóttur hennar, Hectori slökkviliðsmanni og öðrum
ungum manni og segist hafa orðið vitni að slysinu sem kostaði konu Thornes lífið.
Taylor geðlæknir fær kast og ætlar enn einu sinni að viðurkenna allt fyrir
Thorne þótt nú hafi bæst nýr einstaklingur við sem gæti endað í fangelsi fyrir
samsekt, eða garðyrkjumaðurinn sjálfur. Hann lofar að steinþegja og vill ekki
krónu fyrir það þótt ætlun hans hafi reyndar verið sú í upphafi að fá milljón
dollara. Hector hneggjar af hneykslan og trúir engu sem kvikindið segir þeim.
Eftir að Brooke
og Nick giftu sig aftur, eða endurnýjuðu heitin, eru þau að springa úr
hamingju. Nick hefur þó áhyggjur af því að vera búinn að barna fyrrum eiginkonu
sína og núverandi stjúpdóttur, hana Bridget. Brooke fær örugglega að vita fljótlega að hún er að verða amma stjúpsbarns síns.
Verst að hún var búin að lofa Donnu, systur sinni, að Ridge væri endanlega
horfinn úr hjarta hennar og gaf systu veiðileyfi á Ridge, með trega þó. Brooke
sagðist vera svo örugg með Nick, hann myndi aldrei svíkja hana eins og Ridge
gerði ... hahaha. Hún veit auðvitað ekki að þegar hún kyssti Ridge oggulítið á dögunum og
það fréttist með ljóshraða innan fjölskyldunnar þá fór Nick og svaf hjá Bridget ... og barnaði hana.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
