ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Af sápuóperum og spennubók

00:00 › 12. júlí 2008



Ljóta Lety Í gær lullaði Stöð 2 á allan daginn
og án þess að ég væri fyrir framan tækið tók ég eftir því að spænska
var mjög áberandi fyrrihluta dags. Ákvað að kanna málið á Netinu og sá
að komnar eru á dagskrá tvær sápuóperur í stað einnar þar sem töluð er
spænska (eða portúgalska, þekki ekki muninn). Eftir boldið, sem er
góðkunn ammrísk sápa, hófst þátturinn Ljóta Lety, fyrirmyndin að Ljótu Betty, eða La Fea Más Bella. Síðan eftir hádegisfréttir og áströlsku sápuna Nágrannar Nágranna tók við Forboðin fegurð,
ný suðuramerísk smásápa í 114 þáttum og voru sýndir 3. og 4. þáttur í
gær alveg til kl. 14.30. Þar er fjallað um þrjár hálfsystur sem alla
tíð hafa liðið mjög fyrir fegurð sína ... Svo kom blessað boldið aftur
í endursýningu og Nágrannar í kjölfarið. Segið svo að sápuóperur séu ekki vinsælar, bara í gær voru sex sýningar.

Mikið hlakka ég til að setjast í helgan stein
... sem verður pottþétt í leisígörl fyrir framan Stöð 2. Get fylgst með
fallega fólkinu og lífi þess og lært framandi tungumál í leiðinni.
Stundum horfi ég á Nágranna og skil áströlsku núorðið mjög vel.

Sænska bókarkápan Sjónvarpsdagskráin var síðan hundleiðinleg í gærkvöldi, skárst á RÚV, og ég byrjaði að lesa nýja bók eftir Lizu Marklund, Lífstíð. Annika Bengtzon blaðakona er aðalpersónan í henni og kannar morð á lögreglumanni. Þessi bók byrjar þar sem Arfur Nóbels
endaði en þar slapp hún naumlega út úr brennandi húsi með börn sín tvö
... Bækur Lizu Marlund eru allar frábærar og þessi lofar mjög góðu.
Ætla að klára hana á eftir og hlakka mikið til.

Í morgun hefur lífið við Langasandinn verið eins og í myndinni The Birds, mávager og önnur krútt sveima í stórum flokkum fyrir framan og hafa Svona ... kettirnir
verið á gluggaveiðum í allan morgun. Sitja ógurlega spenntir og stara.
Erfðaprinsinn kom til mín áðan og sagði sannfærandi: „Það er allt annað
að sjá þig!“ Ég leit í spegil og sá að andlitið var eldrautt og enn
bólgið og ferkantað (hamstursfés). Ég kýs samt miklu frekar svona
krúttlega lygi en ískaldan sannleikann.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?