Skýjað en skyggni ágætt yfir hafið til Reykjavíkur og upp í Lyngháls þegar klukkan er orðin
níu og ég ætti að vera sest við skrifborðið mitt eldhress á föstudegi ...
Yfirleitt sef ég eins og vært ungbarn allar nætur en vaknaði tvisvar í nótt og
hef ekkert getað sofið síðan kl. 6. Orsökin er klikkaður kláði í andlitinu og heima sit ég löðrandi í kremum og grisjum.
Fékk sérlega gáfulegt komment frá bloggvini og hefur það dregið heilmikið úr þjáningunum ... Þau Hákon krónprins
af Noregi og eiginkona hans, Mette-Marit, fóru í sjónvarpsviðtal 8. maí 2002 og
sátu förðuð úti í sólinni í 75 mínútur með þessum nákvæmlega sömu afleiðingum
nema ég slapp við hornhimnuskaða, örugglega rétt svo ... Rut, þessi nýja uppáhaldsbloggvinkona
mín, sagði m.a.: „Blandan var su sama og
hja ther, smink og solarljos/ljoskastarar. Sannar thetta ekki bara ad thu ert
edalborin?“
Þetta eitt og sér
hefði líklega ekki nægt til að sannfæra mig en þegar þetta bætist við hið nánast
ómögulega þegar við Elísabet II Englandsdrottning lentum báðar í því um svipað
leyti að fá ókunnan mann á rúmstokkinn sitt í hvoru landinu, þá er þetta sönnun. Það
er líka undarleg tilviljun að þyrlupallur er við hlið himnaríkis.
Langar að vekja athygli á því að nokkur pláss eru laus tímabilin 23/7-29/7
(10-12 ára börn) og 30/7-5/8 (12-14 ára börn) í frábæru sumarbúðunum hennar Hildu
systur, Ævintýralandi á Kleppjárnsreykjum. Kreppan hefur ýmsar birtingarmyndir.
Ekki eitt eða tvö, heldur nokkur börn, hafa hætt við að koma því að einhverjar
ferðaskrifstofur bjóða upp á svo einstök
kjör að nokkrir, sem ætluðu að senda börnin sín í sumarbúðirnar, stukku á
freistandi tilboð til að fylla upp í laus sæti sem aðrir höfðu hætt við og þá var hægt að lækka ...
Þetta
myndi eflaust litlu skipta ef Ævintýraland nyti milljóna, jafnvel tugmilljónastyrkja
frá ríki, borg og einkaaðilum á ári hverju, eins og samkeppnisaðilarnir. Hildu munar um því um hvert barn, enda dýrt að reka svona metnaðarfulla
starfsemi svo vel sé. Upplýsingar má finna á www.sumarbudir.is
og svo er auðvitað hægt að lesa sér til um einstaka starfsemina á sumarbúðablogginu,
www.sumarbudir.blog.is.
Þetta eru
frábærar sumarbúðir sem hafa starfað í tíu ár við góðan orðstír og hafa þúsundir
barna notið þess að dvelja þar. Börnin geta m.a. valið á milli námskeiða í leiklist, grímugerð, dansi, myndlist, kvikmyndagerð, íþróttum og fleira, það er t.d. karaókíkeppni í hverri viku, húllumhædagur, diskó o.fl. og svo frábær lokakvöldvaka þar sem börnin sýna afrakstur námskeiðanna. Svo er æðisleg sundlaug á staðnum. Ég vona innilega að Hilda nái að fylla þessi pláss
en annars hefur aðsókn verið góð í sumar.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
