Ansi hvasst hefur verið á Skaganum í kvöld, alla vega hér við sjóinn, og ekki tel ég líklegt að strætó hafi gengið á milli þar sem hviður á Kjalarnesi fóru í um 35 m/sek um níuleytið í kvöld. Sýnist eitthvað hafa dregið úr hviðunum en þetta er ótrúlegt veður svona um mitt sumar. Rétt veður, röng vindátt!Það hefur verið gaman að fylgjast með veðrinu víða um land á vefmyndavélum frá ýmsum stöðum á vefsíðu sem ég fann í gegnum gestabók Skessuhorns. Hér er hlekkur á síðuna frábæru sem ég á örugglega eftir að nota mikið um ókomna tíð.
http://www.danieldesign.se/icelandrightnow.html
Gaman að kíkja til Sandgerðis, Stykkishólms, Reykjavíkur, Grundarfjarðar, Vestmannaeyja, Akureyrar og fleiri staða, bara algjör snilld! Vélin í Stykkishólmi er mjög skemmtileg og sýnir mikið á meðan flestar hinar eru kyrrstæðar, m.a. sú á Akranesi. Það rignir greinilega minnst á Skaganum og Ísafirði, svona miðað við fyrstu flýtirannsóknir. Annars hef ég ekki haft tíma til að leggjast yfir þetta enn, hef verið að vinna í dag og núna er Silent Witness að hefjast á Stöð 2, ætla að reyna að vaka yfir því. Passið ykkur í vonda veðrinu!
Blogg
Rétt veður - röng vindátt
00:00 › 1. júlí 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
