ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Útvarp Akranes, jólahlaðborð og blessað bold

13:40 › 6. desember 2008

Ég druslaðist grútsyfjuð á jólahlaðborðið í gær með fyrri rútu sem fór frá Birtíngi kl. 18.20, brottför átti að vera kl. 18. Sannarlega sársaukafullt fyrir manneskju sem lifir eftir leiðakerfi strætó eða Ástu sem eru alltaf á réttum tíma, a.m.k. Ásta og Skagastrætó.
Maturinn var sérlega góður og ekki var spurningakeppnin síðri sem Tinni á Húsum og híbýlum hélt utan um. Liðið mitt, sem innihélt m.a. SME á Mannlífi, tvo prófarkalesara og einn framkvæmdastjóra lenti í öðru sæti. Við stóðum á gati í kvikmyndagetrauninni, föttuðum að ljósmynd nr. 12 var úr barnamyndinni Regínu og neyddum liðið við hliðina á okkur, sigurliðið, til að láta okkur fá næstum öll svörin fyrir þetta eina svar.
Við klikkkuðum á Ungfrú heimi
... Unnur Birna sigraði árinu áður, við vissum heldur ekki nafnið á danska svindlaranum sem flúði með milljarða úr svikamyllu nýlega, klikkuðum á nafninu á 10 leiðir til að hætta að myrða FÓLK og fara að vaska upp. Gleymdum „fólkinu“, mér að kenna.
Fékk far með góðu fólki að Hvalfjarðargöngum þar sem erfðaprinsinn beið og var að labba upp stigann í himnaríki þegar rútan átti mögulega að fara að leggja af stað frá Glym. Það var ekki bara syfja sem fékk mig til að fara snemma heim, heldur útvarpsþátturinn á Útvarpi Akranes, FM 95,0, sem hófst kl. 11 í morgun. Ég átti eftir að velja tónlistina sem ég gerði í snarhasti um tíuleytið í morgun. Undarleg tónlistarblanda, segi nú ekki annað. Tæknimaðurinn, Óli Valur, var ótrúlega skemmtilegur, enda býr hann á 2. hæð í húsi himnaríkis. (Myndin er frá vaktaskiptunum, Óli Palli að taka við en hann var með þáttinn kl. 13-15)
Maríu tókst síðan að múta mér með brauðtertusneið til að verða kynnir á tískusýningu í Skrúðgarðinum í kvöld ... ó mæ godd, eins og erfðaprinsinn sagði og andvarpaði. Það þarf að vera til fólk sem segir alltaf já ... er ekki einhver sem vantar manneskju til að skrifa upp á myntkörfulán fyrir sig?
BOLD: Dante hefur svikið aumingja Feliciu Forrester sem grætur í örmum systur sinnar, Bridgetar, sem er reyndar gömul kærasta Dante, sem og Taylor. Veit ekki hvað gerðist, reyni að komast að því.
Stefanía þolir ekki að hafa móður sína svona nálægt sér, en Eric bauð tengdó og einnig systur Steffíar, Pam, að búa í gestahúsinu í skrúðgarðinum sem umlykur örugglega Forrester-setrið. Pam hlustar á þetta samtal, liggur hreinlega á hleri. „Pam og Ann verða hér,“ gargar Eric á frúna.
Ridge, sem ætlar að ganga að eiga Brooke sína í tíunda skiptið fljótlega, langar til að giftingin fari fram fyrir utan nýju verslun Forresteranna á opnunarhátíðinni. Hann er samkvæmur sjálfum sér, blessaður karlinn, bað Brooke á tískusýningu fyrir framan milljónir sjónvarpsáhorfenda. Nick, sem áður var kvæntur Brooke, gerir einmitt grín að honum fyrir sýndarmennsku og sjó-off-stæla.
Það sem gæti mögulega haft slæm áhrif á væntanlegt hjónaband er að börn þeirra eru skotin hvort í öðru. Phoebe litla (18), dóttir Ridge og Taylor, og Rick (30+?), sonur Brooke og Erics, pabba Ridge en ekki blóðskylds, kysstust í föstudagsþættinum og Brooke kom að þeim. Það var búið að banna þeim þetta, þau eru ekki blóðskyld en samt tilvonandi systkini. Hvernig ætli upplitið á Ridge verði svo þegar Rick tekur upp samband við Taylor (fyrrum konu Ridge og MÖMMU Phoebe litlu)? Þá verður Taylor skilin við Nick eftir að hafa eignast barn með honum en fyrir mistök er notað egg úr Brooke sem er þá móðir barnsins ... djísús hvað ég hlakka til þegar þetta fer allt af stað.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?