ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Súkkulaði og rósir - strætóleynd og Mamma Mia

06:53 › 5. desember 2008

Leynivinurinn æðislegi sendi mér makkintoss í morgun, ekki heila dós, heldur smekklega innpakkaða mola í plastpoka sem er bundinn saman með gullbandi og -kúlum. Flottur leynivinur, vel virkur annan hvern dag, ekkert á við mig sem hef læðst laumulega um ganga alla morgna og var næstum böstuð um daginn. Sem betur fer hef ég nokkrum sinnum verið send með gjafir fyrir annað fólk og það villir um fyrir leynivininum (þeim sem ég á að gefa).
Skýrsla eftir leynivinaviku: Mánudagur: Tíu rauðar rósir. Miðvikudagur: Stórt súkkulaðistykki með hnetum og rúsínum. Föstudagur: Makkintossmolar.
Þori ekki að gefa upp neitt af því sem ég hef gefið, svona ef "minn" les bloggið. Mont mí leiter!

Steinsofnaði yfir Mamma Mia í gærkvöldi, ekki af leiðindum, heldur syfju. Fagnaði því þegar ég vaknaði hress eins og kornfleksauglýsing við klukkuna í morgun kl. 5.56. Hef reyndar aldrei haft gaman af því þegar fólk í bíómyndum brestur óvænt í söng ... nema í Sound of Music, þar er það bara dýrð. Kannski Mary Poppins líka, þekki þá mynd minna. Áður en ég sofnaði var ég þó komin með feel-good-tilfinningu fyrir Mamma Mia, finnst Abba-tónlist bara fín, og hugsa að ég setji hana á hæsta inni í stofu, verði með kött í annarri og latte í hinni. Sá á Facebook að Valdís Gunnarsdóttir, fyrrum bekkjarsystir úr Austurbæjarskóla og útvarpsstjarna, er ekki hrifin af Mamma Mia, fannst hún bara hallærisleg. Spennt að vita hvorum megin við strikið ég lendi. Úúúúú ... Hefði reyndar aldrei nennt að fara með á Syngjum með-sýningu, enda kann ég enga texta (nema í Sound of Music), hlusta bara á tónlistina, eflaust textahöfundum til hrikalegrar spælingar.

Jæja, kominn föstudagur, jólahlaðborð í kvöld á Hótel Glym (metmæting) og svo útvarpsþáttur á Útvarpi Akranes kl. 11 í fyrramálið! Fékk hálfgert sjokk þegar ég sá dagskrána auglýsta. Þátturinn minn heitir víst Leið 27 - djúsí strætósögur. Sagði þetta í gríni en gríni getur vissulega verið tekið sem dauðans alvöru ... heheheh  Hélt líka að allir vissu að farþegar eru látnir skrifa undir þagnareið þegar þeir ganga upp í strætó, Bílstjórar, Sigþóra og fleiri, ekki óttast. Ég þegi.

Megi dagurinn ykkar verða sannkölluð dýrð og dásemd!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?