Sá færslu á Moggablogginu, http://tatum.blog.is/blog/tatum/entry/734890/
, og langar að vita hvort þetta sem Tatum talar um sé raunhæfur möguleiki til bjargar þjóðfélaginu. Kannski of einfaldur? Kannski of miklir hagsmunir fárra? Hef ekki hugsað út í það að til eru mjög margir lífeyrissjóðir sem fá himinháar fjárhæðir frá vinnandi fólki í hverjum mánuði og ef fólk deyr áður en það fer að „njóta“ eftirlaunanna renna greiðslurnar til sjóðsins. Líka mjög margir yfirmenn á háum launum. Þarna er a.m.k. fullt af peningum. Jamm.
Er soðin eftir bað og ætla nú að kíkja á byrjunina á Mamma Mia. Einu sinni fékk ég afmælisskeyti til London þar sem ég var au pair. Það var undirritað: Mamma Mia, Hilda og Gummi. Þeir sem vita að ég á systur sem er kölluð Mía skilja þetta ...
Fékk ekkert frá leynivininum í dag, eins og hann byrjaði vel. Tíu rauðu rósirnar frá degi 1 gleðja reyndar gamalt hjarta mitt ennþá og súkkulaðið frá degi 3 gladdi erfðaprinsinn, enda var það með bæði hnetum og rúsínum. Þeir sem vita að ég borða ekki hnetur og rúsínur skilja þetta ...
Góða nótt og dreymi ykkur vel.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
