ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Kaupmannskoss, Madonnu-misskilningur og fleira

16:12 › 31. desember 2008

Æ, vildi að mótmælendur hefðu ekki tekið Kryddsíldina úr sambandi, heldur haldið áfram að mótmæla hátt og snjallt. Skemmdarverk á eigum Stöðvar 2 skila engu. Nema ætlunin hafi verið að slökkva á þættinum. Byltingarseggurinn hún móðir mín (74) er þó ánægð með þetta, vill meina að ráðamenn taki ekkert mark á rólegu mótmælunum. Ég vonaðist til að stjórnarslit yrðu í beinni útsendingu til að völvuspá Vikunnar fyrir þetta ár rættist, hún gat ekki séð að stjórnin héldi, frekar en borgarstjórnin.

Furðulegt að kíkja á Moggabloggið í gær, eftir að ég uppgötvaði blogggáttina hefur líf mitt einfaldast til mikilla muna. Ég get fylgst með uppáhaldsbloggurunum mínum, eða séð hvenær færslur koma inn. Ég las nokkur blogg og sá skrýtnar athugasemdir frá Kristni H. Gunnarssyni, svo skrýtnar (sumar klámfengnar og viðbjóðslegar) að einhver hlaut að vera at í bloggheimum. Annars staðar stóð eitthvað sakleysislegt á borð við: "Mig langar í grjónagraut" ... eða bara "Ísland".

Vinkona mín sagði mér í gær að einhverjir vinnuveitendur væru að hugsa um að loka á Facebook því sumir eyddu gífurlega miklum tíma í að vera þar inni. Kannski er ég svona vitlaus en ég nenni aldrei að kíkja þangað nema í fimm mínútur á dag og aldrei í vinnunni. Mér finnst bloggið vera tímaþjófur minn á kvöldin. Í stað þess að lesa eða horfa á sjónvarpið eða spila lúdó þá les ég bloggsíður vina, óvina og ókunnugra. Ég er með gamalt sjónvarpstæki í vinnuherberginu og í gær datt það endanlega úr sambandi, eitthvað að loftnetinu. Held að þar sem því er splæst saman á fagmannlegan hátt hafi eitthvað skemmst. þegar ég flutti þrekhjólið til en því hafði verið komið haganlega fyrir ofan á snúrudraslinu. Garg.

Það er sannarlega ekki hægt að treysta fjölmiðlum. Tek sko undir það sem fólk hefur verið að segja undanfarið. Í slúðurgrein á visir.is kom fram að Madonna væri þreytuleg eftir hátíðirnar. Hún var sögð 51 árs. Mig langar að leiðrétta þennan hroðalega misskilning sem varð til þess að ég sagðist vera 51 árs í gær, sem ég er ekki frekar en Madonna. Við Madonna urðum báðar fimmtugar á árinu sem ekki er alveg liðið. Hún 16. ágúst, ég 12. ágúst. Blaðasnápar mættu hafa smáatriðin á hreinu áður en þeir setja svona bull fram. Og hana nú!

Við erfðaprins (28) fórum í Einarsbúð rétt fyrir hádegi og náðum að kyssa kaupmannshjónin, a.m.k. ég. Margmenni var að vanda, enda frábær búð sem var opin til kl. 12. Held að við höfum munað eftir öllu ... nema appelsíni. Komst að því mér til mikillar skelfingar að mýkingarklútar til að setja í þurrkara fást ekki lengur á landinu (Einarsbúð). Flokkast líklega undir lúxusóþarfa. Hmmm.

Sérlega fallegt hefur verið við Faxaflóann í dag, veðrið hreinlega himneskt. Þrátt fyrir dauf gleraugu sé ég sprengingar og læti frá höfuðborginni. Kannski er þetta bara stjórn Strætó bs að eyðileggja strætókerfið enn frekar. (fliss) Við erfðaprins ókum um og tékkuðum á stoppistöðvunum hér á Skaganum. Stoppistöðin mín við Garðabraut virðist enn vera inni og líka sætukarlastoppistöðin þar sem ekið er út úr bænum hina leiðina, þá sem svo margir Skagamenn kjósa frekar en aðalleiðina. Tek sénsinn á föstudaginn og bíð eftir strætó á minni stöð árla morguns. Eins gott að ekki sé búið að breyta án þess að láta vita, hef engin kort séð af strætóleiðum, en ella þýddi það tveggja tíma bið eftir næsta vagni.

Mía systir er byrjuð að elda kalkúnaskipið sem hún ætlar að bjóða okkur upp á í kvöld. Mikið hlakka ég til, hún er frábær kokkur, annað en næstelsta systirin í hópnum ... sem yrði brjáluð út í mig ef það væri ekki ég sem er næstelst. Ég er fín í kökunum en hef ekki kjark í að ráðast í flókna matreiðslu. Kannski að komandi ár verði notað til að elda gómsætar kreppuuppskriftir.

Óska ykkur öllum innilega gleðilegs árs og vona að nýja árið verði miklu betra en það gamla.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.