ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Barneignir eftir fertugt ... (bold)

19:53 › 30. desember 2008

... er nafn bókar sem Stefanía sýnir erkifjandkonu sinni, Jackie, en tilvist bókarinnar sýnir að Taylor, meintur eigandi bókarinnar og fyrrum tengdadóttir Stefaníu, sé meira en til í að eignast barn með Nick, syni Jackiear, jafnvel giftast honum, segja þær.
Jackie hefur unnið að því bak við tjöldin að bráðum stjúpsystkinin Phoebe litla og Rick hætti að fela sambandið. Það myndi nefnilega skemma samband pabba hennar (Ridge) og mömmu hans (Brooke) og hætt yrði við brúðkaupið vegna hneykslisins (sjá mynd af Ridge og Brooke). Þegar Jackie sér bókina hjá Stefaníu tekur hún óvænt krúttkast og sér fyrir sér fyrsta barnabarnið en Stefanía kemur vitinu fyrir hana. Þessar gömlu skessur vita nefnilega alveg hvað er börnum þeirra og tengdabörnum (líka fyrrum) fyrir bestu. Stefanía er alveg óð og ætlar að finna Nick og Taylor til að segja þeim hvað þau eigi að gera í lífinu en Jackie getur því miður ekki sagt henni hvar þau eru, bílstjóri kom og sótti Nick, ákvörðunarstaður ókunnur.

Á öðrum stað á sama tíma: Rétt eftir að Jackie hefur varað Nick við sambandi við Taylor og sagt að hann elski alltaf hana Brooke og líka Hope litlu sem Brooke á með fyrrum tengdasyni sínum, hringir síminn og þar er Taylor. Hún ætlar að koma Nick á óvart og lætur bílstjóra sækja hann. Nick, með lokuð augun, er studdur af Taylor um borð í bát/snekkju og í ljós kemur að hún fann alveg eins bát og hann átti áður en sökk og hún lét gera hann upp. Hann lýsir yfir ást sinni og samúð (jamm, Lára Hanna þýddi ekki þennan þátt) og þakkar henni fyrir ást hennar og samúð undanfarið. Svo dregur hann upp demantshring og ekkert smá flottan. Stefanía á eftir að verða brjáluð! Hún vill fá Taylor aftur sem tengdadóttur og Brooke, bráðum kona Ridge, á að fara aftur til Nicks, enda elskar hann hana mest.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.