Ljúft og gott aðfangadagskvöld hjá Hildu. Frábær matur og allt bara eitthvað svo afslappað. Mamma sá um að brúna kartöflurnar og ég náði sigrihrósandi-brosi hennar á mynd þegar hún skellti kartöflunum ofan í réttlitaða sykurleðjuna. Nú er heil hersing á leiðinni á Skagann í hangikjöt og auðvitað ætlar mamma að búa til uppstúfið, annað er ekki viðeigandi. Sjórinn ætlar að skarta sínu fegursta fyrir Hildu, hinn brimsjúklinginn í fjölskyldunni, enda stíf suðvestanátt sem er ávísun á öldur og almennan óróa í sjónum. Krummar fljúga hér allt í kring, jólaboðarnir knáu. Best að gefa þeim eitthvað í gogginn í kvöld.
Við erfðaprins fengum fjöldann allan af gjöfum sem voru hver annarri flottari. Mamma fékk sjö bækur, hvorki meira né minna, og mér tókst að ræna einni með mér heim, alveg óvart. Glæpakrimma sem Orri Harðarson snillingur þýddi. Byrjaði á henni í nótt, ætlaði að klára áður en mamma kemur í dag ... en syfjan bar mig ofurliði. Ætla að tala voða mikið í dag og vera með ýmis skemmtiatriði svo að mamma gleymi bókinni og mér takist að klára hana. Það er af sem áður var, greinilega eitthvað meira að gera en bara að lesa á þessu heimili.
Vona að jólin só far hafi verið frábær hjá ykkur, bloggvinir góðir, og ekkert lát verði á dásemdunum.
Hér er jólaskapinu viðhaldið með því að spila jólaóratóríuna, takk RÚV fyrir að gefa færi á því að hlusta svona eftir á: http://dagskra.ruv.is/ras1/4445027/2008/12/24/
Blogg
Brúnaðar kartöflur, bókarþjófnaður og fleira
14:21 › 25. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
