Jæja, þá fer að verða jólalegt í hjörtum himnaríkisbúa. Meira að segja sjórinn skartar sínu fegursta, eða flottu frussi sem færist sífellt í aukana þegar nálgast flóð! (sjá mynd sem var tekin rétt áðan) Barnaefnið mallar í sjónvarpinu, sem bara tilheyrir, og erfðaprinsinn er að raka sig. Kettirnir vita innst inni að þeir fá túnfisk rétt fyrir brottför okkar héðan síðdegis, túnfisk til manneldis, þeir líta ekki við kattamatartúnfiski. Margt er þó ógert áður en hægt verður að leggja af stað til höfuðborgarinnar ... sem leiðir hugann að því: hvernig ætli sé að verja aðfangadagskvöldi í tollhúsinu við Hvalfjarðargöngin? Ætti ekki bara að gefa fólkinu frí og hafa ókeypis í göngin á jólanótt? Svo hef ég líka áhyggjur af fólkinu sem kemst ekki vestur fyrir jólin vegna veðurs, bara fúlt. Jamm, hvernig væri að klára að taka til og byrja að skreyta? Ekki eitt jólaskraut er komið upp í himnaríki og klukkan er farin að ganga 2 á aðfangadegi. Kenni aldri erfðaprinsins alfarið um þetta. Hann hefði aldrei sætt sig við þetta fyrir 20 árum. Við erum líklega ekki þetta sem sumir kalla jólabörn.
Í gær fékk ég símhringingu og var tjáð að myndbandið Allir dansa heima væri komið á youtube.com, myndbandið þar sem himnaríki er í smáhlutverki, aðallega kettirnir mínir, Kubbur og Tommi, örlítið sést í frúna. Sjá sérstaklega kl. 3.21 og kl. 3.57.
Hér er myndbandið: http://www.youtube.com/watch?v=YaahSQ3xWeU
Jæja, elskurnar. Best að fara að skreyta pínupons til að falla ekki í áliti ættingja sem mæta galvaskir hingað í hangikjöt á jóladag.
GLEÐILEG JÓL!!!





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
