Eftir bæjarferð í dag með nokkrar jólagjafir, viðkomu í Kjötborg, Þorláksmessuboð hjá Nönnu Rögnvaldar og annað hjá Halldóri frænda áttaði ég mig á því að ég er orðin algjör landsbyggðartútta. Þegar við erfðaprins vorum hálfnuð í Mosó hringdi gemsinn hans og við þurftum að snúa við, móðirin hafði gleymt töskunni sinni á síðasta viðkomustaðnum ... svo lögðum við í hann aftur og fundum höfuðborgarstreituna leka hratt af okkur á leiðinni. Þykir samt alltaf ósköp vænt um Reykjavík, enda fædd þar og svo uppalin í Stykkishólmi, Akranesi og síðast Reykjavík.
Í boðinu hjá Nönnu var m.a. einn uppáhaldsrithöfundurinn minn, Ævar Örn, en ég var næstum því búin að brenna ofan af fjölskyldu hans í Hólminum þegar ég var tveggja ára, kveikti á eldavél og helludúllan fuðraði upp. Þarna var Ævar ófæddur og ef mamma hans hefði ekki fattað þetta í tíma þá hefðu kannski Svartir englar ekki orðið til ... vúps hvað munaði litlu að ég yrði örlagavaldur ...
Frekar leiðinleg sjónvarpsdagskrá ... Sálin og gospel ... Skárra sér, held ég. Segir ein sem er að æra erfðaprinsinn með jólakveðjum á RÚV. Stöð 2 nauðgar alveg Dagvaktinni með að troða henni á dagskrána daglega, tvöföldum skammti í kvöld, við sem vorum nýbúin að sjá hana. Sjúkkitt ... The Mummy fer að byrja. Er svo þreytt að ég held að ég sjóði bara hangikjötið á morgun. Er það ekki bara aðfangadagslegt? Nenni engum hefðum svona þreytt. Helsta hefðin mín hefur að kíkja smástund til Nönnu á Þorláksmessu. Þoli ekki íþyngjandi hefðir, bara þyngjandi ... múahahaha ...
Gaman að heimsækja Kjötborg, svo mikið var þó að gera að ég gat ekki keypt smjörva, eins og ég ætlaði, ekkert pláss í búðinni, allir að drekka glögg (óáfenga) og svo var almanak næsta árs ekki komið, en ekki málið að senda það upp á Skaga, sagði elsku Gunni. Tókst þó að kyssa kaupmennina mína og þá var tilganginum náð. Kannski næ ég að kyssa Einar og Ernu í Einarsbúð í fyrramálið. Sitt af hverju vantar í himnaríki, m.a. smjörva og ljósaperur. Þau eðalhjón eru í miklu uppáhaldi líka. Hef ekki keypt mikið þar til jólanna. Ekki nóg með að vinnan mín gæfi fínirísjólakjöt, heldur fékk ég óvenjulegan jólapakka frá einni vinkonunni; hamborgarhrygg, meðlæti, malt og appelsín og Makkintoss (sem ég hef aldrei tímt að kaupa fyrir jólin). Snilldargjöf. Jólafrí fram yfir áramót og aldeilis hægt að liggja á meltunni og lesa. Ætla reyndar ekki að missa af myndinni Kjötborg á jóladag, held að hún sé æðisleg, enda mínir menn í aðalhlutverki.
Svo er það bara Kópavogurinn á morgun. Við erfðaprins ætlum að leggja í hann um fjögurleytið ... í storminum sem spáð hefur verið. Sjá www.yr.no, flottu veðursíðuna mína.
Ef ég blogga ekkert á morgun ... þá bara; hugheilar jóla- og nýárskveðjur ykkur til handa ... og til vina og vandamanna, nær og fjær til sjávar og sveita með þökk fyrir öll gömlu og góðu árin ... megum við öll lifa vel og lengi ... þökkum liðið ... Kær kveðja, Gurrí og erfðaprins. Litlu kettirnir biðja kærlega að heilsa. (jú, ég er að hlusta á jólakveðjurnar núna)
Með laginu Jólasveinninn minn með Ellýju Vilhjálms
Blogg
Kjötborg, Nanna og fleira jólalegt
23:58 › 23. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
