ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Ófært undir Hafnarfjalli

14:42 › 22. desember 2008

Undir hádegi í dag hefði orðið ófært fyrir strætó undir Hafnarfjalli og gert Skagamenn veðurteppta eða allt of seina þótt fært sé um Kjalarnes.
Skagamenn verða háðir því eftir áramótin að veðrið undir Hafnarfjalli sé alltaf sæmilegt, eða að vindhviður fari ekki yfir 32-34 m/sek. þar sem strætó verður gerður út frá Borgarnesi og Akranes verður bara viðkomustaður. Hvað segir örugglega-ekki-ódýri ráðgjafi Strætó bs við þessu? Gleymdi hann kannski að hugsa út í þetta? Gerði hann kannski samkomulag við veðurguðina um að veðurfar á Íslandi breyttist? Getur verið að hann (ef það er honum að kenna) hafi gleymt því að stoppistöðin við Skrúðgarðinn, sem á að leggja niður, er ekki bara kaffihúsið okkar, heldur líka upplýsingamiðstöð Skagamanna og verði þar með úr alfaraleið ferðamanna?

Boldfærsla kemur síðar í dag.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?