Mikið hryllilegt ógeð getur hún Donna (sjá mynd), systir Brooke, verið. Hún, ásamt Jackie, mömmu Nicks, ætlar að reyna að koma í veg fyrir væntanlegt hjónaband Brooke og Ridge. Ástæðan er sú að Brooke á miklu frekar að vera með Nick þótt hann sé kominn á fast með Taylor, enda þykir Nick svo vænt um Hope litlu, dóttur Brooke, sem hún eignaðist með Deacon fyrrum tengdasyni sínum. Nick er reyndar líka fyrrum tengdasonur hennar en þó nær henni í aldri en vesalings dr. Bridget Brooke-dóttir. Ég veit ekki alveg hver ástæða Donnu fyrir að skemma væntanlegt hjónaband systur sinnar og Ridge er en í þættinum í dag fór hún á trúnó við Phoebe litlu og hvetur hana til að hlusta ekki á föður sinn, Ridge, sem vill ekki sjá að hún eigi í ástarsambandi við Rick, son Brooke, þar sem þau verða stjúpsystkini von bráðar og ólust auk þess upp við að vera blóðskyld þar til annað kom í ljós. Phoebe virðist ætla að sjá í gegnum sykurhúðað mas Donnu og bendir henni á að það myndi skaða væntanlega opnun verslana Ekta-Forrester ef blöðin fengju ávæning af ástum "systkinanna". Donnu tekst að plata Phoebe upp úr skónum og hringir svo sigri hrósandi í Jackie og segir henni að áætlunin sé komin vel af stað. Jackie fékk Hope litlu lánaða þar sem mamma hennar, Brooke, er í Ástralíu núna, og kemur að Nick og Taylor (geðþekki geðlæknirinn með varirnar) í hörkukeliríi í sófanum. Hope stekkur upp í fangið á Nick og Taylor kveður eftir að hafa fengið illt augnaráð frá Jackie. Þátturinn endar á því að Phoebe og Rick kyssast fyrir allra augum á kaffihúsi (þar sem þau hittust reyndar óvænt) eftir að Phoebe sannfærir Rick um að þau ráði lífi sínu sjálf.
Ég skil ekki alveg leikinn á Stöð 2. Einhver þrjú nöfn Íslendinga eru lesin upp og í lok Íslands í dag kemur í ljós að aðeins einn hlýtur að gjöf matarkörfu eða eitthvað. Eiga þessir þrír að fara í kapp um að hringja eða er bara verið að kvelja þessa tvo sem fá ekkert ... nema kortersfrægð. Einhver?
Jæja, best að fara að pakka inn jólagjöfum. Erfðaprinsinn ætlar að hjálpa mér við það og þá verður þetta nú fljótlegt. Er þegar búin að drekka guðdómlegan kvöld-latte til að sofna ekki, vaknaði óvenjusnemma í morgun. Á morgun verður farið í bæinn í brjálaða veðrinu og gjöfum úthlutað, einnig kíkt í Þorlákspartíin mín tvö, hjá Nönnu Rögnvaldar og Halldóri frænda, einnig langar mig rosalega til að kyssa kaupmennina mína í Kjötborg sem ég átti hamingjurík viðskipti við í 18 ár og fá líka dagatal hjá þeim fyrir árið 2009. Annað kvöld á síðan að sjóða hangikjötið og svo mega jólin bara koma daginn þar á eftir. Við erfðaprins ætlum að vera hjá Hildu sys í Kópavogi (of oll pleisis) á aðfangadagskvöld. Það verður nú rosagaman, mamma og allt!
Blogg
Bold and the beautiful og fleira
20:00 › 22. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
