Elsku Aska (voffi) er farin og það er harla tómlegt í kotinu. Kettirnir steinsofa, örmagna eftir þá lífsreynslu að fá hund inn á heimilið, og ég hef varið deginum í að lesa. Bókin sem ég ætlaði að mæla með í næstu Viku reyndist ekki jafnskemmtileg og ég hélt (þýðing) þannig að ég flýtti mér að byrja á þykkri, djúsí bók um blóðsugu. Twilight, heitir myndin sem byggð er á henni og sýnd núna í bíóhúsunum. Þrususkemmtileg. Ég get því ekki skúrað og þrifið í dag, verð að lesa, vinnan kallar ... æ,æ.
Nú eru allir að kjósa MANN ÁRSINS úti um allt. Það eru tvær manneskjur sem hafa, að mínu mati, staðið upp úr hérna á Skaganum:
María í Skrúðgarðinum sem hefur lífgað svo mikið upp á bæjarlífið með ýmsum uppákomum sem hún hefur staðið fyrir í kaffihúsinu frábæra. Synd að fólk í Reykjavík, eða stjórn Strætó bs, hafi getað staðið fyrir því að endastöðin verði ekki lengur hjá Skrúðgarðinum, þar sem upplýsingamiðstöðin fyrir bæinn er.
Anna Lára Steindal hjá Rauða krossinum er hin manneskjan. Hún hikar ekki við að ráðast í erfið verkefni og allt gengur svo vel af því að hún er ekkert að stressa sig meira en þarf, notar húmorinn óspart og þá gengur líka allt svo miklu, miklu betur. Hún er líka snilldarpenni, er nýbúin að komast að því!
Blogg
Konur ársins á Akranesi!
17:07 › 21. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
