19:13 › 19. desember 2008
Yndislegu tvíburar í heimi eiga tveggja ára afmæli í dag. Þeir fæddust báðir með skarð í vör og hafa gengist undir þrjár aðgerðir vegna þess.
Þetta eru kátir, skemmtilegir og hreinlega dásamlegir ömmustrákar elstu systur minnar og ekkert smá sætir. Ég rændi mynd af þeim af Facebook-síðu móðurinnar og að vanda án nokkurrar miskunnar.
Til hamingju með daginn, elsku Úlfur og Ísak. Hetjurnar hennar frænkusín.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
