ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.4° 10m/s S
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Pínkuoggu-jólatilhlökkun

14:18 › 19. desember 2008

Mikið var gaman að koma heim í gærkvöldi og hitta nýjustu viðbótina við fjölskylduna ... í nokkra daga. Við erum að passa litla tík sem heitir Aska og fullvaxin er hún talsvert minni en kattabreddur himnaríkis. Tommi og Kubbur reyna að ganga virðulega um híbýlin en það er erfitt þegar tryllingslega fjörug tík reynir stöðugt að æsa þau upp í leik. Kubbsu er frekar illa við hana en Tommi umber hana með stóískri ró. Erfðaprinsinn skrapp í göngutúr með Ösku í gærkvöldi sem gekk ágætlega þótt við kunnum ekkert á verulega flókið hálsólardæmið hennar. Okkur tókst þó að klæða hana í hlýju úlpuna. Það er heilmikill leikur í Tomma (11 að verða) en líklega fyrir neðan hans virðingu að leika sér við smáhund. Mér finnst þetta ógurlega gaman, held að ég fari alveg að verða nógu þroskuð til að verða amma.

Síðasta blað ársins fór í prentun í gærkvöldi og ég sit heima núna og klára verkefni í 1. tölublað 2009. Það var fáránlega gott að sofa út í morgun, næstum til hádegis. Þarf líklega að mæta einn dag fyrir jól og svo er það bara langþráð frí. Við höfum unnið rosalega mikið til að ná því að fá gott frí um jólin og flest kvöld undanfarið hafa farið í setu fyrir framan tölvuna heima. Alveg þess virði. Frábært að geta séð sjóinn minn í dagsbirtu, ekki bara heyrt í honum. Er ekki frá því að smávægileg, en bara pínulítil, tilhlökkun til jólanna sé farin að gera vart við sig. Himnaríki fær góða Ajax-yfirhalningu en ekki meira en það, hér verða engir skápar teknir í gegn, bara gert hreint og kannski pínku jólaskraut sett upp. Vinnan mín sá um jólamatinn. Starfsfólkið fékk hangikjöt og hamborgarhrygg, ásamt bokku, já, ég segi bokku ... af sælgæti. Þetta er plastflaska, eins og kampavínsflaska í laginu með sælgætismolum í. Afar höfðingleg gjöf og mun koma sér vel.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.