ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Þau feitu og fáránlegu ... boldfærsla með meiru

18:27 › 17. desember 2008

Ný uppþvottavél er komin i himnaríki. Hún er náttúrlega ekki ný, ekki á krepputímum, heldur notuð, ókeypis og á að vera í lagi, að sögn fyrri eiganda sem er að flytja úr landi. Spenna ársins verður að prófa hana í kvöld eða á morgun. Já, lífið er sannarlega tilbreytingaríkt hér á Skaganum. Gamla vélin gaf sig endanlega á dögunum sem hefur bitnað mest á skólapiltinum á heimilinu. Ég varð ansi hreykin þegar hann sótti einkunnirnar í morgun. Út úr stærðfræðiprófinu fékk hann 9,7 og í heildareinkunn 9,0. Montí mont. Danskan 7,0 sem er bara flott miðað við að hann nennti aldrei að læra hana í denn.

Skrýtið hvað allt bilar í einu, ég þarf að tala við espressóvélarbúðarfólkið vegna lekans í vélinni þótt hún virki alveg. Þori samt lítið að nota hana. Bíll erfðaprinsins er kominn á ágæt, notuð vetrardekk svo hægt verði að fara í bæinn um jólin ... en hann ætlar að geyma að láta gera við bilunina fram yfir áramót. Nú kann hann a.m.k. að spyrja verkstæðiskarla hvað þeir meini nákvæmlega með því að eitthvað "verði ekki svo dýrt" því þótt honum þyki 100 þúsund kall mikið að borga fyrir viðgerð er ekkert víst að öllum verkstæðiskörlum þyki það mikið að fá.

Ég hugsaði erfðaprinsinum þegjandi þörfina í morgun kl. rúmlega 6 þegar ég klæddi mig í rök fötin mín úr þurrkaranum. Hann hafði í gærkvöldi ýtt á takkann sem þurrkar með köldum blæstri, eitthvað sem ég hef nöldrað yfir í huganum að þurrkarinn byði ekki upp á. Nú veit ég betur. Skildi ekkert hvað þessi takki var að gera þarna en gat ekki lesið mér til þar sem leiðbeiningarnar voru á þýsku. Þýskan mín er ekki upp á marga fiska ... þótt ég slái um mig með frösum úr Jólaóratóríunni. Ég þornaði þó hratt, enda gat ég látið þurrkarann malla í sjö mínútur á heitum straumi sem gerði þetta léttbærara.

Ég sofnaði tvisvar yfir Mamma Mia þegar ég horfði á hana sem segir ekkert um myndina, heldur þreytu. Mér finnst hún alveg æðisleg! Ætla að horfa á hana aftur um helgina og þá í heilu lagi. Ég bjóst við kjánahrolli þegar Pierce Brosnan brast í söng en það var ekkert eðlilegra en hann gerði það. Þá eru söngvamyndirnar orðnar þrjár í lífi mínu, þessi, Sound of Music og Mary Poppins.

Rick (sonur Brooke) og Phoebe (dóttir Ridge) hafa lofað að hætta saman en samband þeirra hefur sett allt í umnám í Forrester-fjölskyldunni. Brooke stóð með þeim en hefur eitthvað skipt um skoðun, enda verður unga parið að systkinum innan skamms þegar Brooke verður frú Ridge Forrester. Stefanía, sem var orðin svo góð við Brooke þótt Brooke hafi á sínum tíma stolið Eric frá henni og eignast Rick og dr. Bridget með honum. ...sem ætti að gera Rick og Phoebe skyld en í hittiðfyrra kom í ljós að elsti sonur Erics, Ridge, var ekki blóðskyldur Eric, heldur er Massimo, pabbi Nicks, líka pabbi Ridge. Ég gleymi því alltaf að þeir eru hálfbræður sem ég ætti ekki að gera þar sem Ridge náði Brooke frá Nick eftir að Nick hafði sofið hjá Bridget, dóttur Brooke, en Bridget var reyndar áður gift Nick þegar mamma hennar stal honum frá henni.
Ég hef líklega misst af einhverju en Brooke lofaði? Phoebe litlu (18) að Rick væri ekki með neinni annarri (ég hélt að hún væri á móti sambandi þeirra) en svo endaði þátturinn á því að einhver gömul kærasta Ricks dúkkaði upp, ekki við sérlega miklar vinsældir Ricks, sýndist mér. Nýja Forrester-tískuhúsið má ekki við hneyksli núna þegar á að fara að opna nýju búðirnar, það yrði allt vitlaust ef fréttist af samdrætti óblóðskyldu systkinanna.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.