ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 11m/s WSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Nokkrar góðar niðurskurðarhugmyndir

18:51 › 16. desember 2008

Úr frétt á dv.is:
„Guðlaugur bindur vonir við að þrátt fyir mikinn niðurskurð samkvæmt
fjárlögum verði heilbrigðisþjónustan ekki skert. Hann segir að nú sé í
gangi vinna undir forrystu Péturs Blöndals og Ástu Ragnheiðar
Jóhannesdóttur þar sem litið er til þeirra leiða sem hin Norðurlöndin
hafa farið í heilbrigðismálum og niðurstaða þeirrar vinnu væntanleg í
byrjun næsta árs.
Hann getur þó ekkert fullyrt um að
niðurskurðurinn bitni ekki á þeim sem minnst mega sín. „Við verðum bara
að sjá hvað verður. En þetta eru markmiðin,“ segir hann.“


Frábært og hreinlega stórfenglegt að fá Pétur Blöndal í þessa vinnu um sparnað á sjúkrahúsum. Hann, einn örfárra, sér í gegnum vælið í fátæklingunum sem spara ekki peninga, heldur eyða þeim í mat og slíka vitleysu. Hann er réttur maður á réttum stað. Vona bara að Ásta R. dragi ekki of mikið úr honum og snilldarhugmyndum hans. Það hefði verið áhugavert að fá að vita hvaða leiðir hin Norðurlöndin hafa farið í heilbrigðismálum. En hva ... Pétur reddar þessu á réttan hátt.
Hér koma nokkrar stórkostlegar sparnaðarhugmyndir til Péturs og annarra sem halda um hnífana:

1. Rukkið endilega sjúklinga sem þurfa að leggjast á sjúkrahús. Sérstaklega fyrir matinn þótt viðkomandi sé fastandi eða lystarlaus. Það yrði bara sniðugt. Rukkið endilega börnin á barnadeildinni þar sem ríkið sparar ekki nóg á því að annað hvort foreldra verði að vera yfir barni sínu allan sólarhringinn og því ekki þörf á jafnmörgum starfsmönnum. Svo er snjallt að láta sjúklinga borga sérstaklega fyrir verkjalyf, viðkvæmasta starfsfólkið getur bara keypt sér eyrnatappa. Látið fólk endilega sprauta sig sjálft, ekki bara heima, eins og hefur viðgengist undanfarin ár fyrir aðgerðir, nú má láta það líka taka blóðþrýstinginn, jafnvel framkvæma einföldustu skurðaðgerðir. Spegill, kennslubók í uppskurðum og nokkrar magnyltöflur ... þarf ég að segja meira? Ef ekki næst að setja sjúklingamatarskatt á væri þá ekki sniðugt að láta bara ættingjana koma með mat fyrir sjúklingana? Svo er snjallt að segja nýbökuðum foreldrum að þeir fái ekki að taka barnið með heim nema þeir borgi t.d. 10.000 kall. Held að allir myndu borga. Held að konur leggi ekki í að eignast börn sín heima svo þetta verður flott skattheimta.

2. Rukkið eigendur íbúða og fyrirtækja sem kviknar í fyrir að fá slökkviliðið til að koma. Með því sparast örugglega háar fjárhæðir, mögulega reynir fólk þá í lengstu lög að slökkva eldana sjálft og deyr kannski sem sparar hellings eftirlaunakostnað. Síðan er hægt að rukka dánarbúið um kostnað við komu slökkviliðsins, tvöfaldur gróði.

3, Rukkið almenning fyrir þjónustu lögreglu. Ef brotist er inn hjá fólki getur það lagt 5.000 kall inn á lögguna og hringt síðan eftir þjónustu. Einnig er snjallt að láta kosta jafnmikið að hringja í 112 og það kostar að hringja í 118. Það mætti alveg hafa það sjálfvirkt að almenningur næði ekki sambandi fyrr en eftir tvær mínútur og gjaldmælirinn tifaði á meðan.

4. Rukkið endilega fólk sem fer um landið á bílum. Ekki er næstum því nóg að rukka bara fyrir að fara í gegnum Hvalfjarðargöngin. Tollhlið víða um landið yrði svona svolítið „erlendis“ Við ættum t.d. að borga fyrir að komast inn í höfuðborgina eins og Englendingar gera. Þar eru Hafnfirðingar og Kópavogsbúar ekki undanskildir. Góður peningur myndi koma í kassann þarna.

5. Finnið síðan helling af málum sem eru „stormur í vatnsglasi“ til að dreifa athygli almennings og bloggara frá alvörumálum stjórnarinnar sem best er að almenningur skipti sér ekkert af.

Dettur ykkur eitthvað fleira í hug sem stjórnvöld gætu notað til að skera niður kostnað?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.