Við Ásta spjölluðum áhyggjufullar saman á leið okkar í bæinn í morgun og umræðuefnið var náttúrlega strætóhækkunin. Ég gleymdi að segja henni að ríkisstjórnin væri að hugsa um að fara að rukka sjúklinga á sjúkrahúsum. Strætófarþegar, sjúklingar ... það hlýtur að fara að koma að öryrkjum ... kannski hægt að skerða lífsgæði þeirra meira? ... og hvað með gamla fólkið? Fær það ekki svo rosalega háan lífeyri sem verkalýðsforystan vill vernda með öllum ráðum, eða áframhaldandi verðtryggingu, þótt það þýði verri lífskjör hjá vinnandi fólki? Svo bara hlýtur að vera hægt að reka fleiri skúringakonur úr starfi.
Öll læknisþjónusta er t.d. ókeypis í Frakklandi! Ef frönsk yfirvöld íhuga einhvers konar aðför að almenningi verður allt vitlaust og fólk mótmælir þangað til hætt verður við. Bændur koma m.a. akandi á skítadreifurum til Parísar og láta skítinn vaða á þá staði sem við á.
Jú, við mætum á mótmælin á Austurvelli, jafnvel 5.000 manns en höfum verið töluð niður af fjölmiðlum, iðulega "talin" niður, eins og fjölmiðlar hafi einhverja hagsmuni af því að segja mótmælendur færri en þeir eru. Yfirvöld hér virðast ekki taka mark á mótmælum, enda friðsamleg, og ef einhver er með læti þá er hann bara óeirðaseggur, illa upp alinn bjáni ... eða slíkt. Ég er orðin fimmtug og mig klæjar í lófana til að kasta eggjum, velta bílum og kveikja í þeim ... segi nú svona, en eitthvað þarf að gera til að hlustað verði á okkur. Það er ekki nóg að skipta út ráðherrum, það róar engan.
Stýrivextir eru himinháir hér á meðan þeir eru í sögulegu lágmarki víða annars staðar í heiminum til að minnka skellinn af kreppunni á fólkið.
Þeir sem hafa sett svikamyllur á stofn erlendis hafa verið handteknir og eiga yfir höfði sér langa fangelsisvist. Hér á landi er ekki hróflað við þeim sem hafa þar að auki komið heilu landi á hausinn. Horfið bara á Silfur Egils og lesið síðuna hennar Láru Hönnu á Moggablogginu til að sannfærast um að það er allt að fara til andskotans.
Það er aðför að Skagamönnum að Strætó bs (í Reykjavík) ákveði einhliða að setja okkur í gjaldflokk 3 (þrefalt gjald) á meðan Kjalarnesið er í gjaldflokki 1 (einfalt gjald) og það verður einokun á þessarri leið, engin Akraborg, engin rúta ... bara helvítis okurstrætó! Eini afslátturinn verður í formi afsláttarkorta á kennitölu. Strákurinn minn mætti ekki nota kortið mitt ef hann þyrfti að bregða sér í bæinn, heldur 840 krónur fyrir ferðina, 1,680 báðar leiðir.
Það er aftur á móti aðför að öllum Íslendingum ef rukka á sjúklinga sérstaklega. Ég krefst þess sem skattgreiðandi að sjúklingar séu látnir í friði. Eins og það sé ekki nóg áfall að verða veikur, þurfa kannski að hætta að vinna vegna veikindanna, vera atvinnulaus fyrir eða á skítalaunum og þurfa að borða pasta í öll mál. Það myndi setja gríðarlega mikið strik í reikninginn fyrir fólk að þurfa að fara að borga fyrir að leggjast inn á sjúkrahús. Það bara má ekki gerast. Við verðum að mótmæla því! Ekki bara gefast upp og segja að þetta sé óhjákvæmilegt!
Lokið frekar sendiráðum, afnemið bílahlunnindi, lækkið ofurlaun, minnkið umsvif forsetaembættisins eða hættið með það osfrv. Fáið lán úr lífeyrissjóðunum, þá hafa stjórnendurnir á ofurlaununum þar minna fé til að gambla með. Ekki ráðast á veikt fólk! Heilbrigðisþjónusta er nógu dýr hér á landi, það er búið að efla kostnaðarvitund okkar vel og vandlega síðan Sighvatur tók upp niðurskurðarhnífinn hér um árið, takk! Nóg komið!
Erfðaprinsinn ætlar að láta gera við eitthvert legudæmi í bílnum, eitthvað sem ákveðið verkstæði á Skaganum rukkaði 100 þúsund um en gerði ekki betur við en þetta. Verkstæðiskarlinn sagði "þetta mun ekki kosta mikið", var ófáanlegur til að gefa upp tölu, en svo var reikingurinn þetta hár og efnahagurinn fór í rúst hjá skólastráknum á heimilinu sem óttaðist að þetta yrði kannski 30 þúsund en var búinn að gera ráð fyrir því. Hvekktur erfðaprinsinn þorir ekki annað en fara með bílinn á verkstæði í Reykjavík, verkstæði sem pabbi hans mælti með. Þessi sami verkstæðiskarl á Skaganum sjokkeraði mág minn líka fyrir nokkrum árum, sagði að ákveðin viðgerð yrði sko ekki dýr en svo var reikningurinn 70 þúsund. Þarna eru bara tveir aðilar nálægt mér sem fengu svona meðferð og ætla aldrei með bílinn sinn aftur á þetta verkstæði. Karlinn hlýtur að fara á hausinn með þessu áframhaldi.
Það þarf að drífa sig að láta gera við bílinn fyrir áramót en það mun reynast ódýrara fyrir soninn að keyra til Reykjavíkur ef hann á erindi þangað en taka strætó þar sem hann hefur ekki hag af því að kaupa afsláttarkort og afsláttur ekki veittur nema þeim sem kaupa kort. Ég vinn bara fjóra daga í viku í Reykjavík og er ansi fúl út í Strætó bs fyrir að gefa svona skít í okkur Skagamenn, þeir voru áður svo jákvæðir og hvetjandi og töluðu um frábær umhverfisáhrif og annað ef Skaginn bættist við.
Frá áramótum fær Skaginn allan ágóðann af kortasölunni ... sem minnir mig á ... ef t.d. 500 manns kaupa mánaðarkort á 11.000 kr. gerir það ansi væna upphæð, helmingi meira en þá upphæð sem Akraneskaupstaður hefur niðurgreitt í strætó hingað til og mun halda áfram að borga, enginn aukahækkun á bæjarsjóð.
Þýðir það ekki að mesti gróðinn fælist í því að borga þetta meira niður fyrir bæjarbúa (niður í sömu fjárhæð og áður) fyrst þetta kæmi hvort eð er til baka með fargjöldum? Allir græða. Fólk myndi hætta við að sameinast í bíla til að keyra í bæinn, hvað þá flytja frá Akranesi og þetta dregur nýja íbúa til okkar í íbúðirnar sem standa auðar og eru engum til gagns.
Ég vil samt berjast fyrir því að við Skagamenn förum í gjaldsvæði 2. Það þýðir að þeir sem ferðast til Akraness með strætó borga tvöfalt gjald, ekki þrefalt eins og verður um áramót. Það er eitthvað svo rangt við það að það verði ódýrara fyrir vini mína að heimsækja mig á bílnum frá Reykjavík en taka strætó.
Viðbót:
Vá, hvet ykkur til að lesa leiðarann hans Jóns Trausta! http://www.dv.is/leidari/2008/12/15/island-hvolfi/
Blogg
Hvar eru skítadreifararnir?
08:25 › 15. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
