Amnesty-bréfamaraþonið gekk einstaklega vel á bókasafninu. Kortin sem Amnesty hafði sent á Skagann kláruðust rétt fyrir kl. 14. Flottir Skagamenn. Hreifst einstaklega mikið af hjónum sem komu með börnum sínum sérferð vegna herferðarinnar, útskýrðu hvert kort/málefni vandlega fyrir krökkunum og allir fjölskyldumeðlimir nema sá allra yngsti skrifuðu nöfn sín á fjögur mismunandi kort hvert. Aðrir bókasafnsgestir voru svipað dásamlegir. Trú mín á mannkynið jókst helling við þetta.
Myndin var tekin á leiðinni á bókasafnið undir kl. 11 í gærmorgun í dásamlegu jólaveðri. Tunglið eins og flott jólaskraut.
Svo var það fundurinn í Skrúðgarðinum. Skömmu fyrir þrjú hélt ég að við yrðum bara tveir strætófarþegar með Gísla bæjarstjóra og Karen, formanni bæjarráðs, en svo fylltist allt í einni svipan. Sigþóra settist á móti mér og var með góða kveðju frá Tomma, elsku fyrrum strætóbílstjóra. Hef ekki rekist á Tomma mánuðum saman. En áfram með fundinn ... Ég hef aldrei farið leynt með hrifningu mína á Gísla og það kom mér ekkert á óvart að hann skyldi mæta og það með bros á vör. Þau Karen upplýstu okkur um stöðu mála.
Halda átti fund um málið fljótlega en þar sem farþegar voru orðnir hræddir og reiðir eftir að hækkunin spurðist út flýtti það því að við fengjum upplýsingarnar. Akraneskaupstaður hefur setið við samningaborðið um þetta í einhverja mánuði við Strætó bs án mikils árangurs, skildist okkur, en Gísli og Karen segja að þetta verði ekki svona hræðilegt eins og það leit út. Að öllu óbreyttu þurfum við að borga tvöfalt gjald, ekki þrefalt. Hækkun upp á 100% er gríðarleg en 200% skelfileg (þegar ég fékk 300% hækkun út úr þessu hugsaði ég þetta sem 280 kr. sinnum 300% sem gerir 840 kr. Hækkunin er UM 200% ... en hva ... smá hugsanavilla)
Bloggvinkona mín af mbl.is, Vera Knútsdóttir, stjórnmálafræðingur og snillingur, var á fundinum og strax eftir hann fórum við í himnaríki og skrifuðum við bæjarstjórn bréf með þökk fyrir fundinn ... EN ... við bentum á nokkra alvarlega hnökra á hinum nýja Vesturlandsstrætó (nr. 57) sem verður að laga áður en skrifað er undir og koma þeim upplýsingum til Strætó bs. Megnið af því kom fram á fundinum, sumt frá Gísla og Karen, annað frá farþegum. Skrifuðum einnig bréf til stjórnar eigenda Strætó bs.
Það á t.d. að hætta með sérleiðina Akureyri-Reykjavík og breyta henni í Akureyri-Borgarnes. Farþegar að norðan þurfa að taka strætó frá Borgarnesi, skipta í Mosó og gaman, gaman nema endastöðin verði í Ártúni í Reykjavík, það yrði strax skárra.
Er hægt að ætlast til þess af strætóbílstjóra sem á að halda stífri áætlun að taka við öllum þeim farangri sem t.d. ferðamenn á sumrin flækjast með á ferðum sínum? Ég hef mjög oft farið með Norðurleið sem er iðulega stútfull af farþegum með heilmikinn farangur. Krakkar á leið í eða úr sveit, ferðamenn með bakpoka og hjól ... Þetta útrýmir kannski hvimleiðum farangri og fólk fer að ferðast létt eins og ég lærði þegar ég fór í Evrópusöngferð með Kór Langholtskirkju og var með þrjár ferðatöskur og bara tvær hendur. Eyðilagði næstum fyrir mér ferðina, hef ekki tölu á þeim hótelum sem við gistum á í Austurríki, Ítalíu og Þýskalandi ... en áfram með smjörið!
Hvað ef strætó fyllist af fólki í Borgarnesi og ekki verður pláss fyrir Skagamenn til Reykjavíkur? Það getur enginn giskað á hversu margir Borgfirðingar eiga eftir að notfæra sér þessa þjónustu. Þetta eru ekki bara Borgnesingar, heldur fólk víðar úr Borgarfirði sem verða með í þessu. Farþegafjöldi jókst jafnt og þétt á Skaganum og eina rútan sem flutti okkur með fyrstu morgunferð hérna fyrst er orðin að tveimur fullum rútum.
Og annað. Ef veður gerast válynd (nokkuð algengt á Íslandi) og vindhviður fara yfir 32-34 m/sek undir Hafnarfjalli verða þá Skagamenn veðurtepptir þótt fært sé á Kjalarnesi? Enginn bíll (eða bílstjóri) yrði staðsettur á Akranesi sem hægt væri að grípa til í slíkum tilfellum. Það er hægt að komast leiðina frá Borgarnesi með einkabíl þótt hviður fari upp í rúmlega 40 m/sek en strætó myndi bara fjúka út af.
Það var enginn búinn að pæla í þessum atriðum, enda held ég að starfsmenn ráðgjafafyrirtækja, sem búa til svona áætlanir, taki allajafna ekki strætó daglega, vita kannski lítið um aðstæður. Málin hafa ekki verið hugsuð til enda. En að biðja ekki nokkra farþega um álit áður en vaðið er út í svona breytingar! Með fullri virðingu fyrir rándýrum ráðgjafafyrirtækjum.
Ekki var heldur búið að athuga okkar megin frá hvort innanbæjarstrætó yrði ekki bara virkjaður til að safna saman þeim fjölda farþega sem búa á neðri Skaga og skutla þeim á einhverja af þeim stoppistöðvum í útjaðri bæjarins sem verða í gangi. Það myndi leysa stóra stoppistöðvamálið! Það er ekki ásættanlegt að stór hluti farþega þurfi að ganga í hálftíma eða lengur til að komast í strætó. Þá fer fólk frekar á einkabílnum í bæinn eða leggur í stríðum straumum við íþróttamiðstöðina þar sem stoppistöð er, og tekur stæði frá íþróttaiðkendum. Ekki vinsælt.
Vera benti mér á eftir fundinn að við farþegar munum einir bera kostnað af hækkuninni. Bæjarstjórn leggur sömu fjárhæð í strætó og undanfarin þrjú ár en sú breyting verður þó á að hún fær andvirði þeirra strætókorta (á tvöföldu verði) sem við kaupum ... áður fór sá peningur í kassann hjá þeim í Reykjavík. Einungis kortin verða niðurgreidd þannig að ef við erum með strætómiða verðum við að borga þrjá í stað tveggja. Slæmt fyrir fólk sem vinnur í bænum einn til tvo daga í viku og kortakaup borga sig ekki. Hræðilegt fyrir Reykvíkinga sem ætla að skreppa í heimsókn á Skagann ... eða unga manninn í Mosó sem Vera þekkir og stundar nám við Fjölbrautaskólann á Akranesi.
Svo er furðulegt að Grundahverfið á Kjalarnesi muni tilheyra svæði 1 en við verðum í svæði 3, ekkert svæði 2 verður til í útfærslu Strætó bs. Ef við hefðum lent í svæði 2 hefði þessi sama niðurgreiðsla Akranesbæjar séð til þess að við borguðum það sama og áður. Frekar fúlt.
Níu mánaða kortin, sem kosta eftir hækkun 60 þúsund ... bærinn ætlar að útfæra það þannig að farþegar geti greitt fyrir þau í þrennu lagi sem er glæsilegt, greinilega skilningur á því að venjulegt fólk getur ekki borgað 60 þúsund út á einu bretti.
Jæja, farin að sofa ... þó fyrr hefði verið. Óska ykkur góðrar nætur, nær og fjær til sjávar og sveita. Lofa gríðarlegum bold-dugnaði í næstu viku. Á föstudaginn byrjar jólafrí og þá verður sko fjör, þrif og læti, mikið blogg og blæti.
Blogg
Fínn fundur og ýmsar spurningar
01:53 › 14. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
