ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Amnesty kl. 11 og strætófundur kl. 15

17:30 › 12. desember 2008

Fyrir nokkrum mánuðum hætti frábær manneskja að vinna hér á Vikunni, tók einhver mannréttindi fram yfir snyrtivörur og tísku, eins og ég hef áður sagt frá, og svo hrakti ég hana líka í burtu af því að hún var með sömu hringingu á gemsanum sínum og ég, eða gamaldags ring, ring ... mjög ruglandi. 

Vegna hálfgerðs samviskubits geri ég alltaf allt fyrir þessa manneskju og þegar hún bað mig um að sitja á stól við borð á Bókasafni Akraness kl. 11-14 á morgun, laugardag, og aðstoða fólk í bréfamaraþoni Amnesty sagði ég auðvitað já. Vonandi láta sem flestir Skagamenn sjá sig. Það þarf ekkert að gera nema skrifa nafnið sitt undir kort sem eru tilbúin og verða svo sett í póst af Amnesty. Bara koma, láta gott af sér leiða og halda svo áfram að undirbúa jólin. Ég tek líka við bónorðum ...

JÁ, SVO ER FUNDUR Í SKRÚÐGARÐINUM kl. 15 á morgun, laugardag, þar sem stóra strætómálið  verður tekið fyrir. Þar getum við almenningur látið skoðanir okkar í ljós og mótmælt þessarri aðför að almenningi. Ég vil ekki láta hrekja mig frá Akranesi, frábært að búa hér. Held að bæjarstjórnin, sem var kosin til að bera hag okkar bæjarbúa fyrir brjósti, láti þetta ekki gerast!

P.s. Nýi blaðamaðurinn sem kom í stað Bryndísar er líka með Ring Ring-gemsahringinguna mína ... hvað á ég að gera?

P.s. II Óskahorn: ... plís vonandi kemst ég með 18.45 strætó, plís ... næsta ferð kl. 20.45. plís, plís ... (þetta er óskahorn Guðríðar)



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.