Ég er með stóran hnút í maganum og eiginlega kolbrjáluð úr reiði vegna fréttar sem ég sá í Skessuhorni í morgun.
Í því efnahagslega hruni sem Ísland situr í með skelfilegum afleiðingum fyrir almenning hafa Skagayfirvöld ákveðið aðför að strætófarþegum sínum og ætla að hækka strætófargjaldið margfalt og skerða þjónustuna.
Nú mun stakt fargjald milli Reykjavíkur og Akraness hækka úr 280 krónum í 840 kr. Já, 840 krónur! 1.680 kr. á dag.
Akranesbær hefur greitt háar fjárhæðir til að við Skagamenn fengjum fargjaldið á sama verði og Reykvíkingar. Það hefur mælst svo vel fyrir að í fyrstu ferð á morgnana frá Skaganum (kl. 6.41) fara tvær kúffullar RÚTUR af fólki til vinnu í Reykjavík. Næsti strætó, kl. 7.41, er iðulega fullur líka. Svo hefur þetta strætódæmi virkað vel til að fá fólk til að flytja á Skagann. Allir mjög jákvæðir gagnvart þessu!
Ekki nóg með verðhækkunina, heldur á að fækka stoppistöðvum á Skaganum úr sjö niður í fjórar, m.a. taka mína stoppistöð við Garðabraut sem kom eftir að þjónustan var bætt til muna eitt árið. Þetta heitir, skv. ástkærum bæjarstjóra okkar, að EFLA GAGNKVÆMA ÞJÓNUSTU. Ég hló í gegnum reiðitárin þegar ég las það.
Það verða mismunandi fargjöld eftir "sónarsvæðum," eins og það heitir, og þetta tíðkast víða erlendis, segir í Skessuhorni. Akranes er sónarsvæði 3, Borgarnes sónarsvæði 4. Fargjaldið á sónarsvæði 3 þrefaldast ... og fjórfaldast á sónarsvæði 4. Sæmundur getur alveg eins haldið áfram, held ég. Þetta er enginn strætó lengur!
Ég veit að bæjaryfirvöld þurfa að spara á þessum tímum en Í ÞESSU, almenningssamgöngum? Bara eftir bankahrunið jókst farþegafjöldinn til muna, segja bílstjórarnir, og þegar notkun á strætó er í blússandi uppgangi á að rústa öllu. Er það ekki einmitt efnaminna fólk í meirihluta sem tekur strætó?
Strætó ætti aldrei að vera gróðafyrirtæki, það að nota strætó er umhverfisvænt og verður aldrei annað en þjóðhagslega hagkvæmt.
Okkar vinsæli og frábæri bæjarstjóri FAGNAR ÞESSU í Skessuhorni og sérstaklega því að samgöngur milli Borgarness og Akraness munu stórbatna á ný. Gísli, ég trúi þessu ekki! Hvernig getur þú séð eitthvað gott við þreföldun verðs og fækkun stoppistöðva með tilheyrandi óþægindum fyrir þá sem þurfa að fara langt í vondum veðrum? Allt í lagi á sumrin en vetur á Íslandi ríkir í 7-8 mánuði á ári eða svo ... Stoppistöðvum var fjölgað á sínum tíma af því að þær VORU OF FÁAR! Trúi því ekki að þeir sem hafa tekið þessa ákvörðun hafi mikla reynslu af´því að ferðast með strætó. Urrrr!
Ég flutti á Skagann fyrir tæpum þremur árum vegna þess að strætó átti að fara að ganga þar og það átti að kosta það sama og innanbæjar. Gat aðeins látið draum minn um það rætast vegna nýtilkominna strætósamgangna. Hefði ekki flutt annars, ekki haft efni á því.
Við þessa hækkun þori ég að veðja að farþegum á eftir að fækka gríðarlega mikið. Fólk fer að fara á einkabílum í bæinn, fyllir bílinn af fólki og deilir kostnaði. Það getur ekki verið dýrara eftir þessa hækkun. Ég spurði Ástu, sem ég fer oft með um þessar mundir, af hverju hún reyndi ekki að fylla bílinn sinn af borgandi fólki á morgnana (ég borga henni að sjálfsögðu) en hún sagðist ekki nenna því, bara rétt aðeins meika það að leyfa mér að koma með, annað væri bara vesen. Hún breytir örugglega afstöðu sinni þegar fólk fer að bera í hana fé .... Pant sitja í framsætinu.
Ég mótmæli þessarri hækkun harðlega og einnig stoppistöðvafækkuninni. Á svona tímum á síst af öllu að ráðast á almenning með þessum hætti, það hlýtur að vera hægt að spara á annan hátt. Ég efa ekki að Borgnesingar hafi haldið að þeir fengju að greiða venjulegt strætófargjald fyrir þetta, eins og við Skagamenn, ekki yfir 1.000 kall fyrir staka ferð.
Þetta er eyðileggingarstarf á Skagastrætó sem verður án efa mjög erfitt að byggja upp aftur þegar á að reyna að fá fólk til að koma aftur í strætó eftir að einkabílanotkun eykst. Þvílík afturför. Svo kemur þetta út eins og þetta sé allt Borgnesingum (Selfyssingum) að kenna!, sem það er auðvitað ekki Hugsa að margir Skagamenn hugsi þeim þegjandi þörfina þegar þeir ættu að skamma bæjarstjórnirnar.
Djöfull er ég brjáluð, mér finnst ég hafa verið svikin illilega! Ég sem verð eiginlega aldrei reið. Ekki nóg með að allt sé að fara til fjandans á Íslandi, ógeðsleg spilling grasserar í þjóðfélaginu, litli sparnaðurinn minn hefur rýrnað/horfið, húsnæðislánið mitt hækkað um á aðra milljón milli mánaða og það er viðbjóður að kaupa í matinn vegna verðlagsins ... heldur er ráðist á elsku strætó og reynt að eyðileggja það góða starf sem þar hefur verið byggt upp og skerða lífsgæði okkar farþeganna í leiðinni. Það vantar algjörlega allan rökstuðning fyrir þessum breytingum, þessarri aðför að okkur farþegum. Ef bæjarstjórnin mín á ekki peninga til að leggja í strætó þá eru það skiljanlegri rök en að verið sé að bæta þjónustuna. Þetta er eins og hækkunin í heilbrigðiskerfinu um árið þar sem hún var réttlætt með því að verið væri að efla kostnaðarvitund almennings. Sjúr. Ég er búin að fá meira en nóg af þessu þjóðfélagi!
Blogg
Djöfull er ég brjáluð!!!
08:53 › 11. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
