Það ríkir bæði reiði og vonleysi hjá þeim strætófarþegum, Akranes-Reykjavík, sem ég hef talað við í dag og heyrt af frá Sigþóru. Væntanleg þreföld hækkun á strætófargjaldi og afar skert stoppistöðvaþjónusta vekur miklar áhyggjur hjá fólki.
Þetta virðist skv. fréttum vera gert til að geta tekið Borgnesinga inn í batteríið en þeir þurfa að borga enn meira en við, eða fjórfalt gjald, rúmlega 1.100 krónur fyrir staka ferð, rútufar kostar 1.900 kr. Ekki mikil lækkun, örugglega ekki sú sem þeir vonuðust eftir, og svo verður þetta langt ferðalag ef þeir þurfa að hossast með á Skagann á leið sinni í bæinn. Ég hélt í sakleysi mínu að sérbíll kæmi með þá að Hvalfjarðargöngum og þar kæmu þeir um borð í vagninn okkar en svo virðist ekki eiga að vera.
Mér skilst að strætó muni bruna inn á Akranes frá Borgarnesi og taka farþega hér upp í snarhasti við bensínstöð á
þjóðveginum á leiðinni inn á Skagann, næst við aðra stoppistöð rétt hjá stóra
hringtorginu, síðan við íþróttahúsið og síðast við
sætukarlastoppistöðina við endann á Innnesvegi. Stoppistöðin við Dvalarheimilið Höfða dettur út, einnig stoppistöðin mín á Garðabraut og þessar tvær á
Kirkjubrautinni; hjá Skrúðgarðinum og við hornið á Háholti. Bara hræðilegt.
Ásta mun ekki lengur geta látið ömmustelpuna koma með strætó frá Reykjavík að Skrúðgarðinum. Hún þarf að fara á bílnum og sækja hana á bensínstöð í útjaðri bæjarins, svona eins og þegar Sæmundur sá um rútuferðirnar og í upphafi strætósamgangnanna þegar endastöðin var Skútan. Skrúðgarðurinn er eina kaffihúsið okkar og upplýsingamiðstöð að auki. Við vorum loksins farin að fá ferðamenn, erlenda og innlenda, sem sáust sjaldan á Skaganum áður en Skagastrætó hóf akstur og Skrúðgarðurinn hefur leikið stórt hlutverk fyrir ferðamennina.
Þetta mun drepa niður afar vel uppbyggt kerfi sem hefur verið Akraneskaupstað til mikils sóma. Þetta hefur verið mjög vistvænt; sparað bensín, eyðslu á þjóðvegi og minnkað mengun, og hvað þá peninga! Yfir 100 manns í tveimur strætisvögnum bara í fyrstu ferð á morgnana. Já, það þarf aukabíl í fyrstu ferð. Elskan hann Heimir keyrir hann.
Hækkunin mun örugglega ekki skila sér til bæjarins, þetta verður dauðadómur yfir Skagastrætó, það er alveg pottþétt! Fólk er þegar byrjað að skipuleggja ferðir með einkabílum, vill frekar borga svipað eða jafnvel minna en kostar í strætó, og komast upp að dyrum í vinnunni í Reykjavík.
Bláa kortið kostar 30.500 og gildir í níu mánuði fyrir Reykvíkinga. Það yrði ódýrast fyrir Skagamenn að kaupa það en á tvöföldu verði, 60.100 kr.. Það er dágóð upphæð fyrir venjulegt fólk að reiða fram. Það er dýrt að vera fátækur, það vita flestir.
Mánaðarkort í strætó kostar 5.700 fyrir Reykvíkinga og fyrir Skagamenn verður það 17.100 krónur, 22.800 fyrir Borgnesinga. Ég bað að gamni um launahækkun í dag til að mæta þessu, auðvitað í gamni, enginn fær launahækkun á svona erfiðum tímum.
Segjum svo að vinkona mín ætli að heimsækja mig á Skagann og kjósi að taka strætó til að spara. Hún býr í Vesturbænum og getur tekið leið 15 þaðan í Mosfellsbæ, sem er á svæði 2 ef ég skil þetta rétt (gæti þó verið Kjalarnes sem er á svæði 2). Það myndi kosta hana 560 krónur (eða 280). Síðan skiptir hún, fer með leið 27 upp á Skaga og borgar fyrir það 840 krónur. Það gera 1.400 krónur AÐRA leiðina. Áður 280 krónur. Það yrði aldrei ódýrara en 1.120 krónur aðra leið.
Það sem lokkaði mig upp á Akranes á sínum tíma var tilkoma strætó, frábært framtak hjá bæjarstjórninni, kom bænum á kortið og fékk örugglega fleiri en mig til að flytja hingað á gömlu, yndislegu æskustöðvarnar. Ég borga útsvar hér og kaupi að auki alla þjónustu í heimabyggð (nema tannlækni).
Enn er hægt að mótmæla þessum gjörningi, veit bara ekki hvernig, verst að þetta verður tekið fyrir á fundi á mánudaginn og þá mögulega samþykkt sem bara má ekki verða. Við höfum bara einn virkan dag, eða morgundaginn, til að mótmæla en þá eru farþegarnir í vinnu sinni í Reykjavík, eins á mánudaginn.
Sigþóra sagði mér að Sveinn Kristinsson hjá Samfylkingunni hefði haldið uppi mótmælum á þessum eina bæjarstjórnarfundi þar sem þetta var rætt. Ég hef reyndar verið virkilega hrifin af bæjarstjórninni okkar, enda margt frábært sem hún hefur gert. Verst ef hún mun hafa á samviskunni að skemma Skagastrætó. Það gæti tekið langan tíma að byggja kerfið upp aftur ef þessu verður síðan snúið við.
Bæjarstjórinn okkar sagði í viðtali að eitthvað yrði gert til að koma á móts við skólafólkið. Hvað með Skagamenn sem fá ekki vinnu hér í heimabyggð? Þetta er ekkert annað en gífurleg skattahækkun.
Mikið vona ég að þetta verði endurskoðað og hreinlega hætt við þetta. Þessi skipulagsbreyting kemur sér afar illa fyrir hundruðir Skagamanna, nei, nei, miklu fleiri af því að farþegarnir (námsmenn, fyrirvinnur) eiga fjölskyldur hér. Bæði ósanngjörn hækkunin og breyting á stoppistöðvum sem á án efa eftir að draga allverulega úr fólki, sérstaklega á Neðri Skaga, að nenna að labba í öllum veðrum, jafnvel í hálftíma til að komast í fokdýran strætó sem fer ekki einu sinni alla leið í vinnuna/skólann. Þá er þægilegra að setjast upp í fokdýran einkabíl.
Núna, þegar almenningur þarf að spara sem aldrei fyrr, þá er sárt að horfa upp á svona rústun. Áhugavert væri að fá ástæðuna fyrir þessu og hvort ekki sé hægt að skera niður annars staðar.
Ég er enn að hugsa hvernig bæjarstjórnin fer að því að tala um bætta þjónustu í þessu samhengi, eins og kom fram í Skessuhorni, við farþegar sjáum bara gríðarlega skerðingu og heldur betur óvænta.
Blogg
Dauðadómur yfir Skagastrætó
17:04 › 11. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
