ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Tvíburar, öldur og annir

13:27 › 10. desember 2008

Klikkað að gera núna, eins og svo oft á þessum árstíma. Ég er að tala um vinnuna, ekki jólajóla-eitthvað. Ákvað samt að setja inn eitt stykki hraðfærslu og myndskreyta með fallegustu tvíburum í heimi, Ísak og Úlfi, barnabörnum systur minnar, sem leika þarna tvíhent píanókonsert númer eitt eftir Tjækovskí. Myndinni stal ég án nokkurrar miskunnar af heimasíðu þeirra bræðra.
Nú flæðir að við Langasandinn, jú, ég er heima núna og vinnnnnn. Öldurnar fara stækkandi, himinháar Miðjarðarhafsöldur, tærar og háværar, svona eins og mér finnst þær flottastar. Það líður svo að brjáluðu veðri sem á að skella á í kvöld, svo kemur annað tryllt á morgun. Jamm, alltaf gaman að veðri.
Hafið það svo gott og megi jólapúkinn (stressið) EKKI ná tökum á ykkur.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?