Í lok enn eins frábærs vinnudags kom sendill með 10 rauðar rósir handa mér, risastórar og fallegar, sjaldan fengið fallegri rósavönd. „Vá, hvað ég á góðan leynivin,“ sagði ég heit og rjóð við samstarfsfélagana. Kíkti í kortið sem innihélt eitthvað fallegt og var undirritað af JÓLASVEININUM! Nú veit ég ekki hvort ég á svona góðan leynivin, aðdáanda eða hvort einn jólasveinninn er kominn til byggða of snemma.
Fékk far alla leið heim á Skagann með vinkonu sem tók sig til og eldaði ótrúlega góðan mat fyrir okkur erfðaprins, sjálfa sig og tvo örþreytta matargesti sem héldu tónleika hér á Skaganum seinnipartinn. Matseðill: Fylltar kjúklingabringur með lúxusskinku, gráðaosti og piparosti, gratineraðar kartöflur og gufusoðið brokkólí. Kóka kóla með. Góða súkkulaðikakan hennar Maríu í Skrúðgarðinum var í eftirrétt (hún er í kökublaði Vikunnar ... sem er við það að seljast upp).
Ég sagði matargestunum frá dularfullu rósunum sem sögðu strax að það væri greinilega rómantík í spilinu. Ég svaraði því til að þótt ég ynni með fallegustu mönnum landsins þá væru þeir flestir allt of ungir eða þá hamingjusamlega á föstu. Einu sinni var ég skotin í skólastrákum ... svo kennurum og nú eru meira að segja flestir kennarar orðnir of ungir fyrir mig, tíminn líður svo hratt.
Veit ekki hvort leynivinurinn sem ég gef gjafir lesi bloggið mitt og þori ekki að segja neitt. Hann fékk gjöf sem samstarfsmanneskja færði honum frá mér. Vona að hann hafi orðið glaður. Jú, þetta er strákur. Af því að ég vinn heima á morgun bað ég vissa manneskju um að redda því fyrir mig. Látum ekki sjúkraþjálfun skemma leynivinavikuna. Miðað við byrjunina hjá dásamlega leynivininum mínum þá hugsa ég að ég fái utanlandsferð og smyglaðan gjaldeyri frá honum á fimmtudaginn, síðasta dag leynivinavikunnar. Jess!
Blogg
Leynivinur, aðdáandi ... eða jólasveinn?
23:04 › 1. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
