„Ætli við séum í falinni myndavél?“ spurði erfðaprinsinn hneykslaður í Krónunni í dag. Erindið var að kaupa mjólk og kaffibaunir en af því að það er svo langt síðan við höfum tímt að kaupa almennilegan mat þá kíktum við í kjötborðið. Fjórar rýrar lambakótilettur í pakka kostuðu yfir 1.000 kall, nokkrar kjúklingabringur á 2.500 kall o.s.frv. Er þetta það sem koma skal? Það sem bjargaði þessarri ferð var einstakt tilboð á Prins Póló, eða fjögur stór stykki saman á 99 krónur. Tortryggin eftir lestur okursíðu doktor Gunna bað ég kassastrákinn um að renna þessu í gegn og bjóst allt eins við því að stykkið væri á 99 krónur en nei, allur pakkinn af þessu bráðum ófáanlega súkkulaði ef marka má fréttir fyrir mánuði, var á þessu verði.
Svo var það bara súpupartíið. Ég spurði viðstadda hvort þeir hefðu heyrt í sírenunum sem hljómuðu um Skagann skömmu áður en enginn hafði heyrt nokkuð í þessu verndaða umhverfi sem Hjarðarholtið er. Ekkert sést á fréttasíðunum og ekkert heyrðist í fréttum Stöðvar 2, best að kíkja á RÚV.
Súpurnar tvær, voru æðislegar. Annars vegar laumusterk grænmetissúpa og hins vegar íslensk kjötsúpa. Hitti elsku tvíburana hugumstóru og smellti mynd af þeim þar sem þeir sátu við ömmupíanó og sömdu tónverk.
Blogg
Rýrar kótilettur, góð kjötsúpua og dularfullar sírenur
19:18 › 9. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
