ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Velheppnuð þjóðahátíð og urrandi byltingarkvendi vaknar

19:03 › 8. nóvember 2008

Á meðan fólkið í Reykjavík mótmælti ástandinu á Íslandi brá ég mér yfir ógæfumölina (þar sem ég datt í hittiðfyrra, níu spor í annað hnéð, teygjubindi á hitt og allt!) í íþróttahúsið þar sem Þjóðahátíð var haldin. Mikið var reynt að ota að manni mat þar og ég þorði ekki annað en að hlýða þessu fólki, sagði þó nei, takk við slátri á íslenska básnum. Þigg sko ekkert frá þessum hryðjuverkamönnum ... djók. Fór næst að indverska básnum þar sem Dipu hennar Shaymali (indverska vísindakonan) bauð upp á sterkan og góðan baunarétt. Breski básinn bauð upp á hafrakex með skrýtinni sultu sem ég var vöruð við, hún væri svo sterk. Það var hún. (Myndin hér að ofan er af Dipu á indverska básnum.)
Hitti Línu mína og börnin hennar blíð en Mohammed, yngri sonurinn, var málaður í framan eins og Spiderman. Ég hitti greinilega á rétt þegar ég keypti Spiderman-myndina handa honum í afmælisgjöf í haust. Flottar myndir til sölu í gamla Skaganesti á innan við 1.000 kall. Eldri bróðirinn átti afmæli mánuði síðar og hann fékk að velja sér mynd sjálfur. Keypti fyrir sjálfa mig Simpsons-bíómyndina þar um daginn á þessu góða verði ... ekki spurning að velja staði sem bjóða það ódýrasta!
Ég náði nokkrum frábærum skemmtiatriðum, búlgörskum dansi, taílenskum dansi, palestínskum einsöng (fékk tár í augun, þetta var svo tilfinningaþrungið og fallegt) og svo söng Kvennakór Akraness, meiri snillingarnir sem hún Sigga söng stjórnar. Mía systir var auðvitað flottust!
Erfðaprinsinn kom með mér á hátíðina en stoppaði ekki jafnlengi, hann situr út í eitt yfir skólabókunum, það borgar sig greinilega að vera svona vinnusamur ... hann fékk 9.0 í síðasta stærðfræðiprófi og eitthvað voða gott í dönsku nýlega. Bara flott. Montí mont!
Gamli byltingarmaðurinn innra með mér vaknaði urrandi áðan þegar ég sá frá mótmælunum á Austurvell í fréttunum áðan. Mig langaði svo að vera með. Ekki viss um að ég myndi fleygja eggjum (og þó) en við erfðaprins erum að hugsa um að skella okkur til höfuðborgarinnar á laugardaginn kemur með strætó hugsa ég. Síðasti strætó fyrir síestu vagnstjóranna um miðjan dag fer rétt fyrir hádegi þannig að við gætum hímt einhvers staðar á bekk með nesti þar til allt byrjar.
Það er rosalega erfitt að vita ekkert, þurfa að lesa erlendar síður (eða blogg hjá fólki sem les erlendar fréttasíður) til að komast að því hvað gengur á hér á landi. Að það skuli bara vera rúmur mánuður síðan spilaborgin hrundi er ótrúlegt, mér finnst miklu lengra síðan áhyggjuleysið ríkti hér í himnaríki og pasta var aldrei í matinn.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?