ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Þöggun, þjóðarvá og þorramatur ...

08:03 › 7. nóvember 2008

Þegar ég skreið inn í Hálsaskóg um sjöleytið í morgun kom í ljós að tölvan mín er biluð. Sit hér hálfgrenjandi úr vinnuorku, samviskusemi og einskærum dugnaði en get mér enga björg veitt ... nema auðvitað stolist í tölvuna hennar Írisar við hliðina. Man ekki hvernig ég kemst inn í póstinn minn svona utan frá svo ég verð bara að blogga þunglyndislega og detta jafnvel ofan í spennubókina Fundið fé sem bíður mín hér. Bömmer ... heheh
Mikið verður gott að komast í helgarfrí í kvöld, eiginlega bara dásamlegt og mæta svo hress á Þjóðahátíðina á morgun sem haldin verður í Íþróttahúsinu á Vesturgötunnu (á Akranesi) og hefst kl. 14. Fólk getur, skiilst mér, gengið á milli bása, talað við allra þjóða kvikindi, meira að segja Íslendinga, (passið ykkur á þeim fokkings hryðjuverkamönnum og lánið þeim ekki peninga), séð skemmtiatriði með þeim, smakkað mat frá löndum þeirra (enn og aftur, passið ykkur á Íslendingum, eða svokölluðum thorramat).
Þvílík karlremba hér á DV-blogginu, ég var heillengi að finna blogg sjálfrar mín í þeirri viðleitni að skella inn tímamóta-morgunfærslunni. Fyndið samt, um leið og ég hef fært mig alfarið hingað þá er ég ekki lengur sómi og skjöldur, drottingin, prinsessan, sú æðislega  ... og fleira sem reynt var að sannfæra mig um á ástúðlegan hátt, nú er ég dottin endanlega út af forsíðunni (það verður t.d. að fara inn á BLOGGIРþaðan nema alveg fyrst eftir að ný færsla hefur verið sett inn ...) Skil vel að gömlu vinirnir nenni ekki að heimsækja mig lengur, nema þeir allra tryggustu. Meira að segja Sigurður Hreiðar sjálfur kveður mig í nýlegri færslu sinni. Ekki finnst mér erfitt að finna t.d. Hnakkus, Nönnu Rögnvaldar eða Hildigunni sem öll blogga á flóknum og illfinnanlegum, útlendum síðum.
Gæti verið að einhver hafi borgað ritstjóra DV stórfé fyrir að þagga niður í mér með því að plata mig frá Moggabloggi þar sem rödd mín hljómaði skýrt og hátt yfir lýðinn og ég hafði einhver áhrif? Það skyldi þó ekki vera ... Ég held nefnilega að færslur mínar um Bold and the Beautiful hafi sannfært almenning að lífið hér á hryðjuverka-Klakanum sé miklu dramatískara og erfiðara en í sápuóperunni. Það að t.d. mamma þín stingi undan þér er ekkert mál miðað við 25% verðhækkunina í IKEA. Það að egg úr þér fari óvart í konuna sem hefur keppt við þig um ástir Ridge alla tíð og hún eignist í raun þitt barn með fyrrum manni þínum er ekki rassgat erfitt miðað við verðbætur á lán á Íslandi. Svona væri hægt að halda lengi áfram.

Vona að dagurinn þinn verði sjúklega skemmtilegur! Mundu að ef þú ætlar að kommenta á þessa færslu þá tekur nokkrar mínútur fyrir athugasemdina að komast í gegn. Segðu eitthvað fallegt ... þetta verður annasamur dagur og allt smjaður verður vel þegið (mikið lítur þú vel út beibí ...)

P.s.  Ef þið finnið mig ekki t.d. á morgun hér á DV-blogginu, prófið að leita að mér t.d. í pólsku fréttunum (fréttir á pólsku), mig grunar að þessi aðför að  mér sé hvergi nærri hætt og allar leiðir verði notaðar til að halda mér niðri. Ekki gefast upp, kæru bloggvinir. Leitið og þér munuð finna. Ekki samt hætta að lesa nýju stjörnurnar á DV-blogginu, krónprinsana Illuga eða Eirík. Þeir eru flottir þótt þeir séu dekraðir.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?