Bakið var aumt í morgun og Ásta líkti mér illgirnislega við gamalmenni þegar ég settist inn í bílinn hjá henni kl. 6.21 (já, hún kom einni mínútu of seint). Ég urraði og sagðist vera mun betri í bakinu fimmtug en ég var 25 ára (sem er satt) og þá hefði enginn gert grín að mér fyrir að vera ung, skrýtið. Kannski kemur þetta út eins og ég sé viðkvæm fyrir aldri en svo er nú ekki, mér finnst aldursbrandarar asnalegir og ýta undir fordóma. Hvað er eðlilegra en en að eldast? Það gera allir ... sem lifa lífið af! Ég hlæ heldur ekki að bröndurum um karla á jeppum, að þeir hafi lítil typpi, eða að konur geti ekki bakkað í stæði ...
Í stað þess að fólk beri meiri virðingu fyrir mér eftir því sem árunum og gráu hárunum fjölgar fæ ég frekar að heyra að ég sé of "gömul". Ég samþykki það alveg í sumum tilfellum, ég er t.d. allt of gömul fyrir tónlist með söngvaranum "NeiÆ" og einnig fjallgöngur á hina sjö banvænu tinda í Tíbet ... en það gæti tengst áhugaleysi og líkamlegum styrk mínum sem nægir aðeins í að hlaupa á eftir strætó ... Ég er ekki talin vitrari, þolinmóðari, reynsluríkari, nei ... ég fæ bara að heyra að ég þurfi núna meiri svefn, ja, eða minni svefn, allt eftir því hver talar hverju sinni. Ég veit fullvel að konur á mínum aldri þurfa að passa sig á ýmsu og ef t.d. svo ólíklega vildi til að þær stundi kynlíf þarf að fara sérlega varlega. Ég bendi á ódýr og góð hjálpartæki kynlífsins eins og göngugrind, hafragraut, grilláhöld og Rúmstokksmyndirnar.
Núna heitir t.d. áralöng heimakærð mín og lítil þörf fyrir drykkju og djamm að ég sé gömul. Áður hét það að ég væri heimakær og lítið fyrir drykkju og djamm. ... já, og annað enn alvarlegra: þótt ég sé t.d. jafnaldra Madonnu og ekkert óhugguleg, myndi t.d. Simon Cowell (49 ára) aldrei líta við mér. Hvað þá jafnaldri minn, Viggo Mortensen. Ég hefði ekki einu sinni séns í Sean Connery þótt hann gæti verið afi minn. Það eru í alvöru meiri möguleikar að ég lendi í þremur hryðjuverkaárásum í röð en að ég gangi út, segir mamma sem þó gæti víst lent á séns í hvert skipti sem hún tekur leigubíl.
Óska ykkur allrar lukku í dag, hvort sem þið ætlið að láta frysta lán, ræna banka eða veiða ykkur rollu í kvöldmatinn. Munið bara að pastauppskeran var góð í haust og enginn ætti að þurfa að svelta nema stór hluti uppskerunnar hafi verið fluttur til lífeyrissjóðs VR vegna mögru áranna fram undan. Það er ekki nóg lengur að hafa verðtryggingu á lánum lýðsins, svo mikið er búið að gambla með peningana okkar.
Blogg
Fordómar og hjálpartæki ástalífsins fyrir okkur eldri
08:56 › 6. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
