ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Óveðurssvik, Arnaldur, Auður og völvusnilld

11:49 › 5. nóvember 2008

Það varð lítið úr þessu villta óveðri sem ég beið spennt eftir, það var bara á Hnífsdal sem eitthvað gerðist. Samt heyri ég aldrei talað um Hnífsdal sem rokrassgat, bara Akranes ... sem er EKKI rokrassgat. Ásta svaf varla dúr fyrir látum í turnunum í Sementsverksmiðjunum, þeir eru háværir í roki og vissum vindáttum, segir hún. Við ætluðum að leggja af stað undir hálfsjö í morgun en drusluðumst ekki fyrr en um sjö, mega svefnlausar, ég yfir kosningasjónvarpi til 2 og hún vegna svefnleysisins. Fékk vægt taugaáfall þegar Ásta slökkti á útvarpinu skömmu eftir göng (ÞAÐ VORU KOSNINGAR Í GÆR!!!) og setti einhvern hrylling á ... Whitney Houston, hélt ég fyrst, en sjúkk svo var þetta bara færeyska krúttið og söngdívan, Eivör. Auðvelt að afplána hana en fyrir fréttafíkill eru það fréttir og spjall og viðtöl og skemmtilegheit á morgnana, ekki róandi tónlist. Það risu á mér hárin í morgun af hryllingi.

Kláraði Auði Jóns í gærkvöldi (nótt) og var yfir mig hrifin, engin leið að hætta ... Ætli Arnaldur almáttugur verði ekki næstur á lestrarlistanum. Var hann nokkuð búinn að opinbera kyn Marion?

Mikil blessun er að tilvonandi varaforseti Bandaríkjanna heiti ekki Palín, segi nú ekki annað. Meira að segja ástkærir foreldrar hennar eru veiði- og drápssjúk, sanntrúuð gegn "morðum" á frumum/fóstrum en styðja dauðarefsingu. Sonur minn er hrikalega ánægður með úrslitin, trúði þó ekki að Bandaríkjamenn hefðu vit á því að kjósa Obama og veðjaði við mig gegn því. Hann skuldar mér nú 500 krónur og er ég farin að hlakka til að geta loks ferðast, keypt mér demanta, keypt hrygg og læri í sunnudagsmatinn og fleira. Jamm ...
Völvu Vikunnar skjátlaðist aldeilis ekki þegar hún sagði um miðjan desember 2007 að Obama myndi sigra Hillary í forkosningunum og færi síðan alla leið og yrði forseti Bandaríkjanna. Eitt sem ég man í augnablikinu úr völvuspánni er að íslenska ríkisstjórnin myndi falla. Ekki miklar líkur á því, sýnist mér, þótt vinsældir hennar séu sáralitlar skv. skoðanakönnunum, en hva ... ekki bjóst ég svo sem við að borgarstjórnarmeirihlutinn myndi springa eins og hún spáði, fyrst eftir 100 daga setu, og svo aftur með Ólafi. Þetta er gaman fyrir okkur á Vikunni þegar hlutirnir rætast! 

Vonandi verður eitthvað gott í matinn í hádeginu
. Hef verið á fótum síðan kl. 6.30 og vantar orku.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?