Langt síðan ég hef afplánað bílferð með gelgjum ... yndislegum stelpum en með skelfilegan tónlistarsmekk. Þær hlógu þegar ég bölvaði Celine Dion og Maríu Carey. Á þann hátt sagði ég þeim að tónlistin í bílnum hennar Ástu, mömmu annarar þeirra, væri fyrir neðan allar hellur. Fannst ókurteislegt að segja það berum orðum.
Gurrí: "Hvað heitir þessi tónlistarmaður?"
Gelgja 1: "Uuuu, ég held að hann heiti Nei,Ó"
Það var bæði réttnefni og rétt hjá henni, heyrði það þegar gaurinn á FM957 afkynnti lagið. Ef ég hefði ekki verið rígbundin í öryggisbelti hefði ég hent mér út úr bílnum.
Sem minnir mig á ... þegar við komum út úr göngunum var röð bíla sem beið eftir því að komast í gegnum þau á suðurleið, allt lok, lok og læs. Enginn fyrir aftan okkur heldur. Líklega vorum við síðasti bíll í gegnum þau ... sluppum kannski við einhvern hrylling. Við héldum upp á þetta með því að fara í Skrúðgarðinn og fá okkur kaffi. Í kvöld verður upplestur þar úr bókum Uppheima og á laugardagskvöldið ætlar Jógvan, hinn færeyski söngsnillingur, að syngja. Eftir að Skrúðgarðurinn kom til sögunnar þá hefur menningarlífið heldur betur tekið kipp, alltaf eitthvað um að vera.
Svo verður þjóðahátíð í Íþróttahúsinu við Vesturgötu hér á Skaganum, Skagamenn af erlendum uppruna kynna menningu sína, landi og mat. Ekki spurning, ég ætla að mæta. Hefst kl. 14!!!
Heyrði nýtt mannsnafn á dögunum, ungbarn var nýlega skírt Dreki. Veit að móðir þess er hrifin af sterkum og hljómmiklum nöfnum og hefur haft sem áhugamál að safna þeim. Frumlegt nafn.
Jæja, nú ætla ég að byrja á Arnaldi, hún bíður mín hér á skrifborðinu, rauð og girnileg.
Blogg
Gelgjur, menning og frumlegt mannsnafn
16:55 › 5. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
