Var viss um að kvikmyndateymið hefði gleymt mér þar sem það mætti ekki í himnaríki í gær til að taka skot í tónlistarmyndband. Ég var hálffegin að þurfa ekki að standa við þetta og gera mig að fífli, eins og erfðaprinsinn orðaði það. Svo hringdu þeir í gærkvöldi og ég samþykkti að taka á móti þeim á dansskónum eftir hádegi í dag. Strákarnir mættu og féllu samstundis fyrir Tomma, hefðarketti himnaríkis, og Kubbi, einnig hefðarketti, bara svolítið feimnari. Þeir báðu mig um að vera helst ekki í svörtu þannig að ég setti bara litskrúðugan mini-trefil um hálsinn við svörtu fötin til að fá lit. Svo reyndi ég að dansa töff en umfram allt virðulega, lifði mig inn í flott lagið ... þeir hlógu alla vega ekki en töluðu samt um að fótósjoppa mig þegar ég bað um að þeir veldu skot þar sem ég virkaði grönn. (sorrí, ég veit) (Myndin er af teyminu)
Erfðaprinsinn lokaði sig inni í bókaherbergi á meðan og fylgdist með á Netinu leik Þýskalands og Íslands í handbolta. Við sigruðum með eins marks mun. Jafntefli í gær. Jamm, ég hugga mig við að aðeins verður sýnd um það bil sekúnda með okkur Tomma dansandi, ég hugsa að ég þekkist ekki einu sinni.
Er að lesa viðtalsbókina við Margréti Pálu og mikið rosalega er hún skemmtileg og vel skrifuð! Þórunn Hrefna, höfundirinn, fer á kostum ... það skiptir öllu máli hvernig svona bækur eru skrifaðar og húmor er magnað krydd, fer alla vega vel þarna. Vona að mér takist að ljúka við hana í kvöld, las til fjögur sl. nótt.
Blogg
Frábær Margrét Pála og the tónlistarmyndband ...
16:20 › 30. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
