ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Evrópusambandið?

13:49 › 30. nóvember 2008

Lá í símanum í gærkvöldi sem er mjög óvanalegt. Yfirlýsing á blogginu um að
það ætti að B-mennskast um helgina, eða vaka lengi frameftir og sofa út, fékk
næturgeltina mína til að hringja og það fyrir miðnætti. Mikið er ég hissa á því
að þeir hafi haldið að ég færi að sofa fyrir þann tíma um helgar. Aldrei!

Rökræddi um stund við vin minn um Evrópusambandið og hugsanlega aðild
okkar að því. Vinurinn skaut í kaf öll jákvæð rök mín í þá veru en ég hef verið
beggja blands upp á síðkastið, horft á gáfað og klárt fólk með Evrópuglampa í
augum, fólk sem ég tek virkilega mark á. Ég skriffaði þetta upp í leikritsformi og eftir minni ... kannski svolítið stíft samtal sem það var ekki í gærkvöldi.

Ég: „Hvað með verðtrygginguna? Það yrði nú aldeilis gott að losna við helvítið
og taka upp nýja, stöðuga mynt.“

Vinur: „Verðtryggingin dettur ekki sjálfkrafa út, alls ekki, bara kannski. Við
höfum aldrei uppfyllt kröfur Evrópusambandsins um að fá að taka upp evruna,
ekki einu sinni þegar best gekk hjá okkur, og það gætu liðið mörg ár þangað til
það gerðist. Þá væri staða okkar orðin svo góð að það væri fásinna að vera í Evrópsambandinu.“

Ég: „Við gætum samið um fiskimiðin okkar, það eru allir svo hræddir um þau.“

Vinur: „Já, en bara tímabundið. Ef við göngum í sambandið munu hagsmunir þess ráða.“

Ég: „Við fengjum fleiri en einn íslenskan fulltrúa sem gætti hagsmuna okkar í
ESB.“

Vinur: „Þeir mega ekki gæta hagsmuna eins lands, bara hagsmuna ESB. Fulltrúi Bretlands
í nefndum þar talar t.d. aldrei um Bretland, bara heildina Evrópusambandið, og
það gera önnur lönd innan þess líka.“

Ég: „Getur krónan staðið þetta af sér? Það trúir enginn á hana lengur.“

Vinur: „Við gætum t.d. tekið upp dollara á morgun. Þyrftum að kaupa peningana og
eins mikið og við vildum, engin höft þar. Kananum er nákvæmlega sama hverjir
nota dollara. Margar þjóðir hafa tekið upp dollara án nokkurra vandkvæða.
Þótt dollarinn sé óstöðugur núna er hann mun skárri en evran.“

Ég: „Ó. Af hverju tala þá allir um inngöngu okkar sem skref inn í gósenland?“

Vinur: „Þegar við
gengum inn í EFTA á sínum tíma hrundi t.d. húsgagnaiðnaðurinn. Það er ástæða
fyrir því að sjávarútvegurinn vill ekki sjá að við förum inn í Evrópusambandið,
ekki heldur bændur, innganga hefði alvarlegar afleiðingar fyrir marga. Lög EES,
sem við höfum tekið upp, gerðu t.d. útrásarvíkingunum auðveldara fyrir, enda er
þetta viðskiptabandalag.“

Nú er ég orðin kolrugluð. Hvers vegna vilja svona margir fara inn í Evrópusambandið
ef það er ekki betra en þetta? Endilega, ef þið hafið rök fyrir hinu gagnstæða,
skellið inn kommenti. Þetta er svo stórt mál, mig langar virkilega til að vita sem mest um það. 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.