ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

"Strætóborgin", bækur og bold

18:21 › 3. nóvember 2008

Þusti niður súkkulaðibrekkuna upp úr kl. 4 eftir sérdeilis fínan vinnudag. Sigþóra kom á stoppistöðina við Vesturlandsveg rúmu korteri seinna og náði fyrri bíl sem átti löngu að vera kominn. Ég sagði henni frá afrekum helgarinnar í lestri: þrjár íslenskar spennusögur og ein þýdd unglingabók. Það var virkilega gaman að rifja upp kynnin við Einar blaðamann sem var á vettvangi á Ísafirði að þessu sinni. Er afar hrifin af bókum Árna Þórarinssonar um hann. Svo var gaman að lesa hraða og ævintýralega spennusögu eftir Óttar Norðfjörð og bókin hans Jóns Halls var líka skemmtileg og óvænt. Er að hugsa um að róa þetta aðeins niður og kíkja næst í bók Auðar Jónsdóttur. Hefði gjarnan viljað lesa Arnald en hún var ekki komin upp í vinnu þegar ég fór heim.

Við vorum ansi mörg í strætó. Bara fimm í viðbót ... og þá hefði þurft að skilja einhvern eftir í Mosó eða kalla á aukabíl. Haukur bílstjóri kom með þá hugmynd að Akraborgin færi að ganga aftur og þá heyrðust saknaðar- og hrifningarhljóð í farþegum, svona flestum. Sigþóra fór næstum í slag við konu hinum megin við ganginn sem fór að tala um sjóveiki og sagðist frekar velja sjóveiki en lenda í hviðunum á Kjalarnesi ... en akkúrat á morgun er einmitt spáð klikkuðu hviðuveðri þar sem vindátt verður óhagstæð eða austlæg. Þá verð ég örugg í himnaríki við að skrifa einhverja dásemd í Vikuna. Sigþóra hefur verið frekar óheppin í ferðum sínum á milli, held ég lent í öllum óhöppunum sem hafa hent í strætó, fokið út af og fleira gaman. Kannski ekkert skrýtið þótt hún sé stressuð þegar hvín og blæs í hviðum upp á yfir 30 m/sek. Jamm, það hefði verið gaman að fara yfir hafið í dag með Strætóborginni, jafnvel þótt það sé suðvestan átt og undiralda. Jamms, maður man þetta svo sem síðan í gamla daga.

Bridget kemur að Nick
og Taylor í faðmlögum og lætur aldeilis í sér heyra. Erindi hennar til Nicks var einmitt að reyna við hann en þau voru gift áður en Brooke, mamma hennar, stakk undan henni og stal Nick um stundarsakir. Nick getur illa leynt ást sinni á Taylor og gerir hvað hann getur til að koma í veg fyrir að hún giftist Thorne, fyrrum mági sínum, bróður Ridge sem var kvæntur Taylor til margra ára og á með henni Tómas og tvíburana og bað nýlega Brooke, mömmu Bridget sem er nýskilin við Nick.

Nýja fyrirtæki Forresteranna heitir Ekta-Forrester og er Eric stoltur af því. Þegar ég kom inn í boldið áðan var Jackie í freyðibaði með freyðandi kampavín í glasi og gerir sem hún getur til að tæla Eric í bað með sér. Samt eru þau keppinautar ... Nick, sonur Jackie, er í óðaönn að reyna að grafa undan nýja fyrirtækinu og á gamla Forrester-fyrirtækið, kúgaði það út úr fjölskyldunni. Eric er enn kvæntur Stefaníu (mömmu Thorne og Ridge) og þarf þar að auki að fara yfir tölur og getur því ekki baðað sig, Jackie lofar að bíða hans þótt hún verði eflaust eins og sveskja þegar hann kemur. Systir Stefaníu bjargar henni frá þeim örlögum og verður alveg brjáluð þegar hún sér hana, enda er þetta baðkerið hans Erics, mágs hennar, og rekur hana upp úr af mikilli hörku.  



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?