ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Eins og í raunveruleikasjónvarpsþætti

12:29 › 3. nóvember 2008

Róleg og notaleg strætóferð í morgun, Skúli bílstjóri greinilega enn með flensuna en Kiddi kom okkur í Mosó. Vinkona mín sótti mig í Mosó, rændi mér í Kaffitár, Bankastræti þar sem hún bauð upp á morgun-latte en í Bankastrætinu er alltaf opnað snemma, eða 7.30. Þetta er greinilega vel séð því að það er alltaf þröngt á þingi á morgnana fyrir 9. Ég hef dregið seglin þvílíkt saman í heimilishaldi himaríkis, lifi meira og minna á helvítis pastaógeði til að lækka matarreikninginn EN ég ætla ekki að hætta að fara í Skrúðgarðinn, Kaffitár, Te og kaffi osfrv., og kaupa mér kaffi. Held ég sé alveg hætt að fara í bakaríið í Mosó, þarna við Krónuna, þar virðist eingöngu vera hægt að fá brennsjóðandiheitan latte, sama þótt maður biðji um að mjólkin sé ekki hituð of mikið. Hef reynt þrisvar eða fjórum sinnum og hef nú gefist upp, sorrí. Ásta virðist fá gott kaffi þar þegar hún er ein á ferð. Gott hjá henni. Hún hefur nú verið í vikufríi frá mér og tveimur dögum lengur en tekur upp áætlunarferðir aftur frá og með miðvikudeginum ... brottför kl. 6.15 frá himnaríki sem er tími sem þið skulið ekkert vera að pæla í, þetta er tími fyrir fullorðna, tími sem finnst ekki á vekjaraklukkum venjulegs fólks.


Ég held að íslensku þjóðinni hljóti að líða eins og í raunveruleikaþætti, a.m.k. þeim hluta hennar sem enn hefur vinnu. Á sumum vinnustöðum hættir allt í einu einhver að sjást við kaffivélina og skömmu síðar fréttist að viðkomandi hafi verið sagt upp og beðinn um að hætta strax. Ég á góða vinkonu sem er að sturlast á þessu ástandi í vinnunni hjá sér. Það er hún sem líkir því við raunveruleikaþátt.


Skil ekki alveg hvað ég er í góðu skapi þessa dagana. Kannski er það vegna heimsku, ég geri mér eflaust ekki grein fyrir alvarleika ástandsins ... veit að bráðum verður húsnæðislánið mitt orðið hærra en andvirði lækkandi í verði íbúðarinnar ... og ef allt fer á versta veg þá er ég ekki borgunarmanneskja fyrir neinu ... öll veð landsins í raun að verða handónýt. Ekki gengur upp að láta hálfa þjóðina fara á nauðungaruppboð ... eða hvað! Bíð enn spennt eftir því að eitthvað verði gert. Nú er kominn mánuður og ekki er enn farið að slökkva eldana. Bara rifist um hverjir eiga að vera í slökkviliðinu og hvað eigi að nota á eldinn.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?