Boldið er samt við sig, frekar rólegt þar miðað við ástandið á Íslandi og víða í bloggheimum ... Hér kemur skyldu-boldskammtur vikunnar, verði ykkur að góðu, kæru bloggvinir.
Stefanía og Eric, ásamt syninum Ridge, og Brooke hans fóru í vetrarskála fjölskyldunnar til að ræða málin. Kerlurnar voru eitthvað ósáttar og létu sitt af hverju flakka. Karlarnir aðskildu skössin, þau yngri (45-55) skruppu í gönguferð en það upphófst mikið fjör hjá "öldruðum" (70-80) ... byrjaði á koddaslag ... Eftir gönguferðina vildi Brooke ganga úr skugga um að Stefanía væri sofnuð, nennti ekki að hitta hana meira um kvöldið, svo hún klifraði upp stiga utan á húsinu og kíkti inn um gluggann hjá tengdó. „Þú vilt ekki sjá þetta,“ sagði hún við Ridge sem kíkti samt. „Ó, mér er illt í augunum ...“ sagði hann, enda kynlíf eldri borgara, hvað þá foreldra manns algjört hryllingur. Hehehhe. Eric notaði líkama sinn þarna til að fá Stefaníu til að samþykkja að Forresterarnir settu á stofn verslanir sem seldu hönnun þeirra. Gott á Nick sem dyggir lesendur vita að keypti upp allar helstu búðir í Ammríku til að hefna sín á Stefaníu sem hann heldur enn að hafi hrint Jackie, mömmu hans, niður stiga og að auki valdið henni skömm og sorg þegar hún opinberaði heiminum það leyndarmál að Jackie hefði selt sig.
Í þessum þáttum eru konur tælandi og karlar verndandi ... Phoebe litlu (18) var ekki skotaskuld úr því að lokka tilvonandi stjúpbróður sinn, Rick, til að skutla sér heim þótt hann væri hræddur við að vekja vanþóknun og reiði Ridge, pabba hennar. Bíllinn bilaði og þannig komst þetta upp.
Donna, systir Brooke, fékk slæma dóma sem sýningardama og andlit fyrirtækisins í tískublöðunum en hún vinnur fyrir tískuhús Nicks, þetta sem Nick píndi út úr Forresturunum til að Stefanía færi ekki í fangelsi. Man ekki meira ... sá þetta á hlaupum í dag.
Fór í stórskemmtilegt afmæli í dag, opið hús í Krókatúninu. Húsbóndinn bauð upp á gómsætar pönnukökur, húsmóðirin upp á glæsilega jólaskreytt hús og ... hnetu-möndlu-döðlu-og-rúsínu-köku. Ég var svo seint á ferð, eða rúmlega fjögur, að búið var að kveikja á jólaljósunum á Akratorgi og enn skemmtiatriði í gangi, hafði ætlað að kíkja þangað eftir afmælið ... en það er ekki hægt að gera allt. Nú fara jólin alveg að koma, og gjörsamlega alveg að koma þegar búið er að setja stjörnuna upp hjá Sementsverksmiðjunni. Þótt bannað sé að tala um stjórnmál í fínum boðum gátum við þó ekki stillt okkur um að ræða aðeins um ástandið í þjóðfélaginu og fokkins verðtrygginguna. Eitt sniðugt sem kom upp ... Eldri borgarar í Noregi geta varið síðustu árum lífsins á Kanaríeyjum, þar eru norsk dvalarheimili fyrir aldraða. Þvílík snilld.
Jæja, farin að lesa bókina um Margréti Pálu, skilst að hún sé rosalega skemmtileg. Hafið það gott í kvöld!
Blogg
Skyldubold og afmæli
18:18 › 29. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
