ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Gífurleg hækkun húsnæðisláns

23:50 › 28. nóvember 2008

Fékk áfall þegar ég kíkti í netbankann minn. Ég var spennt að vita hvað verðtryggða húsnæðislánið mitt hjá ÍLS á 4.15% vöxtum hefði hækkað mikið. Róaðist aðeins þegar ég sá að afborgunin var bara 2 þúsund kalli hærri en síðast ... en þegar ég sá eftirstöðvar 11 milljón króna lánsins, sem tekið var í ársbyrjun 2006, tók ég andköf. Þær höfðu hækkað úr 12.5 m í 13.8 m á einum mánuði.
Man að þegar ég var búin að borga 800 þúsund af þessu láni hafði það hækkað um 800 þúsund. Svona meðferð á lánþegum þekkist víst hvergi annars staðar í heiminum. Um tvær milljónir sem ég hef greitt þessi ár eru horfnar inn í eitthvert svarthol. Verkalýðsforysta á ofurlaununum vill hafa þetta svona áfram svo að almenningur geti haft það "gott" í ellinni, segja þeir. Hefur gamla fólkið það svo gott? Vá, hvað ég þreytt á þessu ástandi. Það þarf að fara að taka ærlega til í þessu kerfi.

Að allt öðru:
Kona fór með vinkonum sínum á barinn eftir vinnu. Þær sátu og drukku kokteila þegar myndarlegur og ótrúlega kynæsandi maður á besta aldri gekk inn. Hann var svo sláandi myndarlegur að konan hreinlega starði á hann.
Maðurinn myndarlegi tók eftir augnaráði konunnar og gekk beint til hennar. Áður en hún gat beðist afsökunar á því að hafa starað svona hallaði hann sér að henni og hvíslaði: „Ég geri hvað sem er, og ég meina hvað sem er, fyrir þig, alveg sama hversu kinkí það er, fyrir 2 þúsund kall ... með einu skilyrði ...“
Konan var algjörlega slegin út af laginu, næstum orðlaus, en stundi að lokum upp spurningu um hvert skilyrðið væri.
Maðurinn sagði: „Þú þarft að segja mér hvað þú vilt í hvorki fleiri né færri en þremur orðum.“
Konan íhugaði tilboðið eitt augnablik, dró síðan tvo þúsundkalla upp úr veskinu, þrýsti þeim í lófa mannsins, ásamt heimilisfangi sínu, horfði svo djúpt í seiðandi augu hans og sagði hægt en ákveðið:
.....
.....
......
.......




„Þrífðu húsið mitt!“



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.