ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Eftirmál ...

19:15 › 28. nóvember 2008

Mikið er gott að það skuli vera komin helgi. Annasöm vika að baki og nú verður B-manneskjan tekin á þetta um helgina. Sagði við Sigþóru í strætó á heimleiðinni að ég ætlaði að halda partí fyrst erfðaprinsinn yrði ekki heima í kvöld en það var bara töffaratal. Latte varð töfradrykkur kvöldsins og félagsskapurinn ástkærir kettirnir.

Eftir hlutleysi-í-trúmálum-færsluna mína um daginn
fékk ég ótrúlega margar athugasemdir, meira að segja heilmikið skítkast á bloggi nokkru og kom það mér á óvart. Hef hingað til ekki skrifað um trú eða vantrú og áttaði mig ekki á því hvað þetta er viðkvæmt mál, enda ekki meiningin að ráðast á neinn. Fékk reyndar móral út af því sem ég skrifaði um útvarpsmanninn á Rás 2, enda held ég að drukkið fólk í útvarpi pirri mig frekar en ljúfur útvarpsmaður.

Viðbrögðin hafa þó gert mig sannfærða
um að hlutleysi sé það eina rétta, gjörsamlega óháð þessum blessaða skartgrip sem þulan bar. Ég tek hvorki afstöðu með trúuðum né vantrúuðum, vil vera hlutlaus, hef alist upp við að trú sé einkamál hvers og eins. Hef ekki séð ástæðu til að segja mig úr þjóðkirkjunni þótt hún sé ekki hafin yfir gagnrýni ... en ekki má gleyma að hjá kirkjunni er líka unnið gott starf, oft bak við tjöldin, nærtækt dæmi um það er að þegar sonur minn fermdist í Dómkirkjunni á síðustu öld og haft var samband við mig frá annarri kirkju til að bjóða mér fermingarveislustyrk þar sem ég var atvinnulaus. Það verð ég ætíð þakklát fyrir. Þegar pabbi dó 2001 kolféll ég fyrir séra Bjarna í Laugarneskirkju sem jarðsöng pabba, finnst hann algjört góðmenni og ekki er konan hans síðri, hún séra Jóna Hrönn. Ég þekki nokkra mjög trúaða sem eru frábært fólk, einnig trúlausa sem eru líka frábærir. Veit þó ekki trúarafstöðu flestra vina minna og kunningja, enda finnst mér hún ekki skipta máli.

Eitt gott ráð
: Ef þið farið í fínt boð er víst algjörlega bannað að tala um þrennt: Trúmál, stjórnmál og veikindi! Trúið mér, ég hef þetta beint frá fínni frú. Í partíinu mínu hérna í himnaríki í kvöld verður ekki minnst á neitt af þessu! Hugsa að kettirnir fagni því, enda steinsofandi.
 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.