Heyrði upphaf morgunþáttar Bylgjunnar þegar við Ásta skriðum inn í Reykjavík. Þau Kolla og Heimir hneyksluðust á skoðun Matthíasar í Vantrú á því að opinberir starfsmenn ættu að vera hlutlausir í trúmálum, alla vega þessu með áberandi kross um háls sjónvarpsþulunnar. Er hjartanlega ósammála þeim að þessu sinni og tek undir með Matthíasi um hlutleysið. Trúmál geta verið álíka viðkvæm og stjórnmál og ef fólk hefði horft á þuluna með merki Vinstri Grænna, Sjálfstæðisflokksins eða einhvers annars stjórnmálaflokks hefði allt orðið vitlaust. Annars er kross ekkert stórt tákn í mínum huga, bara skartgripur og ekki einu sinni flottur sem slíkur. Sá ekki kross þulunnar.
Hlutleysi í trúmálum er ekki sama og trúleysi, það er bara kurteisi og fagmennska að sýna það í opinberu starfi, að mínu mati. Mér finnst t.d. óþægilegt að opinber starfsmaður á borð við Geir Jón yfirlögregluþjón, sem er áberandi í sjónvarpsfréttum, skuli iðulega láta sjá sig á Omega, sjónvarpsstöð þar sem m.a. fordómar gagnvart samkynhneigðum, múslimum og jafnvel konum koma fram. Það veikir traust mitt á honum.
Ég var hissa þegar forsætisráðherra okkar sagði hjá Jóni Ársæli sl. sunnudagskvöld að hann hefði fengið mikið pepp frá trúuðum upp á síðkastið (til að sitja sem fastast) og það væri beðið fyrir honum út um allan bæ. Finnst ekki fagmannlegt að segja svona en alveg pottþétt krúttlegt í huga trúaðra. Ég hætti að hlusta á næturvakt Rásar 2 á föstudagskvöldum af því að annars yndislegur útvarpsmaðurinn sagði alltaf við drukknu konurnar sem báðu um óskalög: „Guð blessi þig,“ og þær klökknuðu af hrifningu. Sumum þykir þetta sætt, mér finnst þetta væmið og mjög óviðeigandi ... Rás 2 kolrangur vettvangur fyrir annað en: „Hafðu það gott“, eða „Góða nótt“. Ég hef litla þolinmæði gagnvart sumum krúttlegheitum, flúði hratt af Moggabloggi þegar rafrænu knúsin voru tekin upp þar ... eða þannig, sakna þeirra ekkert þótt meiningin sé góð á bak við þau.
Ég tilheyri Þjóðkirkjunni ... en vil samt aðskilnað ríkis og kirkju. Er sammála sr. Hirti Magna með það að sama batterí og úðar táragasi yfir mótmælendur á ekki að vasast í trúmálum líka.
Jæja, best að fara á youtube og leita að hákirkjulegri kórtónlist ... t.d. jólaóratóríunni ... dásamleg vinnutónlist líka.
Jamm, hafið það óxla gott í dag, og megi miðvikudagurinn færa ykkur allt annað en mæðu, mistök og miskunnarleysi,heldur eingöngu mýkt, morgungleði og menningu!
Blogg
Hlutleysi í trúmálum
07:02 › 26. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





