Fékk furðulegt og frekar loðið bréf frá tryggingarfélaginu mínu um sparnaðarlíftrygginguna mína. Þar kemur fram ... „að síðan í október hafi verið takmarkanir á því með hvaða hætti hefur verið hægt að ráðstafa sparnaði viðskiptavina í þær ávöxtunarleiðir sem þeir sjálfir hafa valið ...“
Félagið, í umsjá hins nýja Glitnis, hefur sem sagt ekki getað fjárfest með peningunum mínum í október og nóvember og ætlar ekki að skuldfæra upphæðina í desember af reikningi mínum. Mér er frjálst að taka út sparnað þessa tveggja mánaða, okt og nóv. Fyrst ég er ásökuð um að hafa valið þessa (áhættusömu) leið til ávöxtunar held ég að ég geti bara gleymt þessum peningum. Held að þetta hafi verið varfærnisleg leið tryggingafélagsins til þess.
Þetta hafa ekki verið margir þúsundkallar á mánuði, ég hef eiginlega skammast mín fyrir hversu lítið. Ein vinkona mín hefur borgað yfir 30.000 kall mánaðarlega í reglubundinn sparnað til að eiga til efri áranna. Trúi því varla að svona blábjáni eins og ég skuli mögulega „græða“ (tapa minna) á því að hafa ekki verið forsjál og sparsöm eins og þessi vinkona mín.
Jamm, maður fer að finna fyrir þessu fyrir alvöru næstu vikur og mánuði, bíð spennt eftir því að fá húsnæðislánsreikninginn fyrir desember og á eftir að fá sjokkið yfir verðinu á jólamatnum. Welcome to the real world, Gurrí mín.
Blogg
Horfinn sparnaður - kreppufærsla úr himnaríki
22:59 › 25. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
