ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Uppnám í himnaríki ...

08:14 › 24. nóvember 2008

Þurrkari himnaríkis gafst upp í gærkvöldi, einmitt þegar hann var í miðjum klíðum við að þurrka fötin mín. Eins og alþjóð veit þá á ég ekki mikið af fötum, eiginlega rosalega lítið og það algjörlega viljandi, (á líka lítið af skóm, horfi alls ekki á Opruh eða sannsögulegar bíómyndir ... ókvenleg eða frjáls undan oki staðalímynda?) og ef þvottavélin borðaði þvottinn (slíkt hefur gerst, a.m.k. sokka) þá kæmist ég ekki í vinnuna og yrði að hætta þar til ég væri búin að fá nýjan fatnað í jóla- og afmælisgjafir. Gæti tekið eitt eða tvö ár þannig að mikilvægt er að þessi heimilistæki bili ekki!
Einhver ótrúleg tilviljun olli því að ég striplaðist á sloppnum inn í þvottahús undir svefninn, og sá að þurrkarinn hafði stoppað eftir 20 mínútna blástur.
Erfðaprins, erfðaprins, eru það fokkings þungu gallabuxur yðar sem hafa sett starfsemi þurrkarans í uppnám?“ gargaði ég og fór að brýna kutana. Prinsinn var þegar kominn upp í rúm með báða kettina (svikarana) til fóta og kom hlaupandi þegar hann heyrði að ég var byrjuð að umbreytast. Kettirnir þutu undir rúm, enda hrímaði andrúmsloftið með ljóshraða og grýlukerti hrundu niður úr loftinu. Einn bilaður þurrkari hefði líklega ekki haft þessi áhrif en þegar bættist við að Dexter var óáhorfanlegur vegna truflana á SkjáEinum-plús þá var voðinn vís. Ég raðaði fyrirhuguðum vinnufatnaði á ofninn í stofunni, ekkert annað til ráða. Fikt í sallarólegum erfðaprinsinum varð  þó til þess að þurrkarinn hrökk í gang aftur en ég nennti ekki að rífa allt af ofnunum og skella í hann. Sem betur fer er Ásta með rassahitara í bílsætunum ...

Kökublað Vikunnar fer í prentun á eftir. Það er sjúklega flott og heill hellingur af uppskriftum í því, aldrei fleiri ... Það kemur síðan í búðir á fimmtudaginn og selst yfirleitt upp á nokkrum dögum í milljónum eintaka. Bara láta ykkur vita svo síðasta blaðið verði ekki uppkeypt fyrir framan nefið á ykkur. Starfsfólk Vikunnar var neytt til að vera með ... og er súkkulaðikökuuppskriftin mín klikkuð, ættuð frá Maríu í Skrúðgarðinum. Líklega ein besta súkkulaðiterta sem ég hef smakkað. Góð sem muffins.

Vona að dagurinn verði ykkur dásamlegur, fullur af daðri og dásemdum!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?