ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Þýðing á Odd Thomas og Næturtónar

17:13 › 23. nóvember 2008

Kláraði Dean
Koontz í gær
, íslenska
þýðingu á bókinni Odd Thomas og mundi furðumikið úr henni eftir að ég
las hana á ensku fyrir einhverjum árum. Það tók smátíma að venjast þýðingunni,
t.d. að Storm, kærastan Odds, væri kölluð Hryðja og að sjálfur Odd héti
Skrýtinn. Það að presturinn gerði mögulega mistök og átti að skíra hann Todd í
stað Skrýtins féll því um sjálft sig í bókinni. „Sorrí, Gurrí mín, þú áttir að
heita Helga, presturinn gerði mistök og skírði þig Guðríði,“ hefði mamma sagt
við mig undir þessum kringumstæðum. Odd eða Todd, Guðríður eða Ruðríður. Það er
þó vandasamt að vera þýðandi og þurfa að taka svona ákvarðanir, þetta er samt fínasta þýðing, bókin rann ljúflega í gegn,
hryllingssagan sú arna. Sátt við að skrýtnu kvikindin sem boða alltaf einhvern
hrylling þegar þau birtast Odd karlinum kallist váboðar, enda nákvæmlega það
sem þau eru. Verst er þegar þýðendur staðfæra hlutina upp á Ísland, Jay Leno-þáttur breytist í Hemma Gunn, amerískur stórmarkaður í Bónus og slíkt. Algjörlega óþolandi og eldist mjög illa!

Við erfðaprins gerðum himnaríki svolítið fínna um helgina, ætluðum að
breyta í stofunni en sjónvarpsloftnetssnúran kom í veg fyrir að það tækist. Það
er samt ekkert lummulegt í himnaríki, bara óbreytanlegt.

Vefupptökur RÚV eru nú meiri snilldin, það má t.d. auðveldlega
gleyma Silfrinu því hægt er að horfa á það á Netinu síðar, eins og ég gerði
t.d. í dag. Nú er ég að hlusta á Næturtóna
síðan á föstudagskvöldið http://dagskra.ruv.is/streaming/ras1/?file=4445278
en þar er unaðsleg klassísk tónlist leikin frá miðnætti og fram að morgundagskrá
Rásar 1. Ef koma leiðinlegar sinfóníur (þær eru sko til) þá er hægt að rúlla
auðveldlega yfir þær. Jazz hefur oft verið viðloðandi á klassískum
stöðvum, ekki við miklar vinsældir mínar. Jazz finnst mér reyndar stórskemmtilegur
á tónleikum, alls ekki í útvarpi og í Næturtónum
er maður alveg laus við kvikindið ...  Það
er hægt að hlusta hálfan mánuð aftur í tímann. Næturtónar hófust sl. vor, eru á dagskrá allar nætur og ég er bara
nýbúin að uppgötva þetta, garg. Hef verið mjög spök í vinnunni eftir að ég
fattaði að hlusta á þetta þar í heyrnartólum. Svo er ekki amalegt að fá tónlistina
kynnta. Vildi bara deila þessari dýrð
með ykkur.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?