ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Frábær Katrín Odds á Austurvelli og smá bold

15:16 › 22. nóvember 2008

Katrín Oddsdóttir laganemi er mikil snilldarræðukona, hún blés fundarmönnum á Austurvelli og sjónvarpsáhorfendum magnaðan baráttuanda í brjóst. Hún komst beint að kjarna málsins í frábærri ræðu sinni og m.a. gefur ríkisstjórninni viku til að boða til nýrra kosninga. Ég fékk tár í augun á meðan hún talaði og ættjarðarástin bullaði og sauð og reiðin jókst. Vildi að Stöð 2 hefði ekki köttað á útsendinguna svona snemma og það fyrir endursýndan þátt af Sjálfstæðu fólki ...
Þolinmæði almennings (lýðsins/skrílsins/öreiganna) er á þrotum. Öll leyndarmálin og lygarnar, veruleikafirringin ... Hef beðið róleg eftir að allt myndi lagast en það versnar bara. Veit ekki hvort þetta með tilvonandi klikkaðislegan olíugróða á að vera smyrsl á sárin, lítill plástur á svöðusárið ... eins og pínulítil, tímabundin launalækkun þingmanna sem munu eftir sem áður hafa það miklu betra en flestir aðrir. Karlinn þarna frá Evrópusambandinu sagði í sjónvarpinu um daginn að við Íslendingar ættum ekki að reyna að breyta sambandinu utan frá, frekar ganga í það og semja síðan um auðlindir okkar. Hmmm, sýnir að samningsaðstaða okkar er ekki jafnsterk og sumir vilja vera láta. Er þetta ekki bara samband sterkra og stórra þjóða með aðaláherslu á viðskipti? Meðan ég veit ekki meira og hef ekki heyrt sterkari rök en að verðtryggingin hverfi með nýrri mynt (eftir mörg ár) er ég ekki sannfærð um gæði þess að Ísland sæki um aðild. Kannski eru kostirnir fleiri en gallarnir, kannski ekki.
Miðað við ástandið á Íslandi er allt í sómanum í boldinu. Nick hefur tekist að hefna sín á Forresterunum með hryllilegum afleiðingum. Hann keypti upp allar verslanakeðjur í Ameríku, a.m.k. þær flottustu, og ætlar ekki að selja nýju, glæsilegu línuna sem Forrester-fjölskyldan hefur skapað og lagt allt sitt undir til að geta sýnt og sannað að hún sé best í tískuheiminum. Örfáir mættu á sýninguna, engir tilvonandi seljendur, bara fréttamenn sem hurfu hver af öðrum, það hafði frést að Jackie M-keðjan hefði eitthvað merkilegt að segja sem reyndist vera þetta. Það bullsýður líka í fjölskyldunni vegna mögulegs sambands Ricks (sonar Brooke og Erics) og Phoebe (dóttur Ridge og Taylor), Stefanía og Brooke rífast í fyrsta sinn eftir að hafa sæst og finnst þeirri fyrrnefndu sú síðarnefnda ekki taka þetta nógu alvarlega. Þetta gæti verið hættulegt fyrir samband Brooke og Ridge og er ekki við hæfi að stjúpsystkinin, börn þeirra, eigi í ástarsambandi, ekki í henni Ameríku. Hér á Íslandi myndi það bara þykja sætt, enda viðgengst allur fjandinn hér á landi, sjá Alþingistíðindi.
(Myndin er af Brooke og Ridge og tilvonandi stjúpsystkinunum, Rick og Phoebe)



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?