Samkvæmislífið er sannarlega upp á heilmarga fiska þessa dagana. Fimmtugsafmæli í gær, óvænt, bragðgott og skemmtilegt, og annað og ekki svo óvænt fimmtugsafmæli eftir vinnu í dag. Í gær varð gamall skólafélagi minn fimmtugur, þekkti hann ekki mikið í gamla daga en Súsönnu, konu hans, þeim mun betur, enda er hún vinkona Ástu og kom með henni í afmælið mitt. Glæsilegar veitingar; heitt súkkulaði og hnallþórur í löngum bönum. Súsanna kynnti mig fyrir flestum gestunum sem gamla kærustu Andrésar (af því að við vorum saman í barnaskóla, döhhh), EN alltaf gaman að eignast óvænt kærasta. Hann barðist samt um á hæl og hnakka þegar ég ætlaði að taka hann með mér heim og ekki var konan hans sátt heldur. Þetta var víst bara svona hallærislegt djók hjá henni.
Svo hélt Gauja vinkona upp á afmælið sitt í dag. Enginn karlmaður þorði að koma,mögulega vegna afmælisatviksins í gær, en maðurinn hennar er svo hávaxinn og enginn aumingi svo hann þorði að vera. Ég kom á góðum tíma, eða þegar fyrra hollinu var að ljúka og áður en næsta holl kom svo ég gat hámað í mig kræsingar og drukkið ókjörin öll af rauðvíni óáreitt. Systir afmælisbarnsins ók mér heim áður en ég skandalíseraði nálægt gamla, siðprúða heimiliskettinum.
Vinnudagurinn í dag var annars alveg frábær, við lögðum síðustu hönd á kökublað Vikunnar sem kemur út á fimmtudaginn stútfullt af kræsingum (uppskriftum sko). Helgi úr Skjaldborg kom með splunkunýja þýðingu bókarinnar Odd Thomas, Skrýtni Tómas, eftir Dean Koontz, sem ég hlakka til að lesa aftur, nú á móðurmálinu. Hann var líka með Mary Higgins Clark og nokkrar í viðbót. Ég er eiginlega farin að lesa ... ætla rétt að kíkja á Útsvar, held með Ísafirði til heiðurs Védísi vinkonu minni sem býr þar. Samt vann ég í Hraðfrystistöðinni í Grindavík sumarið 73, 15 ára gömul og held því líka með Grindavík. Ísafjörður vann í Útsvari og Grindvíkingar voru samt æðislegir, þessar elskur.
Skúli ók næstum fullum Skagastrætó af miklu öryggi frá Mosó kl. 17.47, leið 15 kom eiginlega á hárréttum tíma frá Reykjavík. Var byrjuð á Dean Koontz-bókinni og bauðst til að lesa upphátt fyrir hann alla leiðina ef hann leyfði ljósunum að vera á. En Skúli tekur eitthvert farþegaöryggi fram yfir skemmtiatriði svo hann slökkti bara og ók í myrkrinu sem leið lá á Skagann þar sem erfðaprinsinn beið á stoppistöðinni og skutlaði síðan hrumri móður sinni í afmælið. Sannarlega miklir umbrotatímar í himnaríki, bara eilíft djamm sem veldur dekurköttunum á heimilinu miklu óöryggi.
Blogg
Villt samkvæmislíf
21:05 › 21. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
