Skil ekki hvað ég er að gera við tölvuna núna þegar ég gæti verið að lesa Yrsu ... og Hallgrímur Helga og margir fleiri í bunkanum góða. Svaf lengi frameftir, nú er ekkert sem hvetur mann til að fara snemma á fætur um helgar, eins og t.d. hádegisfréttir Stöðvar 2. Sofnaði um 11 leytið í gærkvöldi í leisígörl og vaknaði undir morgun ... og að vanda svaf ég mína átta tíma alveg upp á nýtt eins og gerist þegar bjútísvefninn er rofinn. Fegin að aðdáendur mínir, ungir sem gamlir (undir 5 ára og yfir 70 ára), eru kvöldsvæfir og ekki í stuði til að hringja í mig á nóttunni.
Er þakklát Stöð 2 fyrir að sýna beint frá mótmælunum á Austurvelli og finnst líka fjölmiðlar farnir að sýna meiri virðingu í umfjöllun sinni um þau.
Jæja, farin að klára Yrsu, er að verða hálfnuð og orðin mjög spennt. Hér að neðan má sjá endurtekið efni frá gömlu bloggsíðunni minni síðan í júní sl. Norrisinn er sígildur og þolir vel endurtekningar.
- Chuck Norris var fyrsta manneskjan til að temja risaeðlu.
- Chuck Norris getur stöðvað tímann, jafnvel í heila tvo tíma, bara með því að hugsa um ananas.
- Chuck Norris borðar striga og pensla í morgunverð og skítur meistaraverkum.
- Líkamshár Chuck Norris eru tíu sinnum sterkari en kóngulóarvefur og fimmtíu sinnum límkenndari.
- Hjarta Chuck Norris slær einu sinni í viku.
-
Í piparsveinapartíi Chuck Norris borðaði hann alla tertuna áður en
vinum hans gafst tækifæri til að segja honum að það hefði verið
strippari inni í henni.
-
Þegar eiginkona Chuck Norris brenndi kalkúninn á Þakkagjörðardaginn
sagði Chuck: „Engar áhyggjur, honey,“ og skrapp út í bakgarðinn. Fimm
mínútum síðar kom hann aftur með lifandi kalkúna sem hann gleypti í
heilu lagi. Nokkrum sekúndum síðar ældi hann fullsteiktum kalkúnanum og
að auki trönuberjasósu. Þegar kona hans spurði hann hvernig hann hefði
farið að þessu tók hann hringspark í andlitið á henni og sagði: „Aldrei
spyrja Chuck Norris.“
- Chuck
Norris var fjórði vitringurinn. Hann færði jesúbarninu sjálft skeggið
að gjöf sem Jesú bar til dauðadags. Hinir vitringarnir beittu áhrifum
sínum til að nafn Chucks yrði afmáð úr biblíunni. Ekki svo löngu síðar
létust þremenningarnir af völdum einhvers tengdu hringsparki.
- Hver fruma í líkama Chuck Norris hefur eigið skegg.
- Það rignir aldrei á Chuck Norris.
- Þegar Chuck Norris rekur við kemur lykt af nýbökuðum kanilsnúðum.
- Sumir fá sér pepperoni á pítsuna sína, aðrir fá sér sveppi. Yfirleitt fær Chuck Norris sér Venesúela.
-
Þegar Chuck Norris var í fríi á Spáni borðaði hann skemmda paellu sem
olli þeim versta niðurgangi sem nokkur hefur fengið í sögu mannsins.
Þessi niðurgangur heitir nú Frakkland.
-
Eftir skoðanakönnun sem gerð var nýlega kom í ljós að 93% kvenna hugsar
um Chuck Norris í samförum. Í svipaðri könnun kom í ljós að Chuck
Norris hugsar um Chuck Norris í 100% tilfella.
- Chuck Norris talar um sjálfan sig í fjórðu persónu.
- Chuck Norris hallaði sér einu sinni upp að turni í Písa á Ítalíu.
- Chuck Norris á afmæli þrisvar á ári.
-
Chuck Norris er ekki með venjuleg hvít blóðkorn eins og annað fólk.
Utan um hvítu blóðkornin hans er lítill, svartur hringur sem þýðir að
þau eru með svarta beltið og gefa hverri bakteríu sem kemur óboðin
hringspark. Þess vegna veikist Chuck Norris aldrei.
- Þegar Chuck Norris segir upp kærustunum sínum segir hann: „Það er ekki ég, það ert þú!“
-
Maður nokkur spurði Chuck Norris eitt sinn hvort rétt nafn hans væri
Charles. Chuck Norris svaraði ekki heldur starði á manninn þar til haus
mannsins sprakk.
- Kvikmyndin Alien vs. Predator er byggð á fyrstu kynlífsreynslu Chuck Norris.
- Chuck Norris hringsparkaði Bruce Lee eitt sinn og Bruce brotnaði í tvennt. Þannig urðu Jet Li og Jackie Chan til.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
