ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Spæling í Útsvari, hvolpaheimsókn og afmælisveisla

22:29 › 14. nóvember 2008

Settist fyrir framan Útsvar áðan og hlakkaði til að horfa á Skagamenn hefna ófaranna síðan síðast og rústa Kópavogsliðinu. Mér var þegjandi og hljóðalaust skipt út úr liðinu í haust, líklega af því að Skagaliðið komst bara þrisvar í sjónvarpssal á síðasta keppnistímabili og endaði í átta liða úrslitum, tapaði þar fyrir fokkings Kópavogi (djók) sem fór alla leið og hreppi verðlaunabjölluna. Ásta, meðreiðarmær mín flesta morgna í bæinn, var ósköp ánægð með skiptin og sagði spámannslega að þetta vel skipaða lið myndi rústa Útsvari og færi heim með bjölluna vorið 2009. Ég var hjartanlega sammála henni og er grútspæld og steinhissa yfir tapinu. Við hefðum aldrei átt að hleypa Bjarna Ármanns til Noregs! Annars er leitun að skemmtilegri manneskju en Mána, við erfðaprins veltumst um af hlátri yfir honum, sáum Vífil bróður hans fyrir okkur læra Biblíuna utanbókar í jólafríinu fyrir Gettu betur.

Eftir tvær skemmtilegar strætóferðir í dag er ég endurnærð, það er alltaf gaman að taka strætó. Úlli kokkur skutlaði mér í Mosó eftir vinnu og þegar hann áttaði sig á því að það væru 55 mínútur í næsta strætó á Skagann fór hann með mig í hvolpaheimsókn heim til sín, Ylfa Ósk eignaðist sex hvolpa á dögunum (29. okt) eins og alþjóð man eflaust. Ylfa Ósk mundi greinilega eftir öllum stolna harðfiskinum sem ég hef gefið henni í gegnum tíðina í heimsóknum hennar í Hálsaskóginn og fagnaði mér vel. Ég settist við hvolpakassann og varð bara snortin af traustinu sem hún sýndi mér en hingað til hefur hún engum „ókunnugum“ treyst til að vera nálægt kassanum nema fylgjast sjálf gribbulega með ... en hún fór bara inn í eldhús og ég gat skoðað litlu krúttmolana. Fékk að prófa að halda á þeim og er gjörsamlega heilluð. Úlfhundar eru æði.
Svo var mikið stuð í strætó á heimleiðinni, við ókum frá Háholti í jólasnjó og sungum vitanlega Ó helga nótt. Við þögnuðum við Esjurætur þegar við áttuðum okkur á því að það snjóaði ekki lengur ... vorum komin í nýtt veðurbelti þar sem veður var milt og rigningarúði. Þá tóku bara fylleríssöngvar við.

Eftir ferð í Einarsbúð var mætt í brjálað partí heima hjá Línu, þriggja ára afmælisveislu Nadeen. Hnallþórur, sælgæti, gos, hlátur, dans og spjall. Ég var dregin út í dansinn og er víst sæmilega efnileg í mjaðmahnykkjunum ... Kjartan tók nokkrar myndir og nú þarf ég að borga honum 50 krónur í hverri viku svo hann geri þær ekki opinberar! Myndin er af Línu og Nadeen í ammmlinu!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?