ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Hormónar uppseldir-brjálaðar miðaldra konur á Austurvelli á laugardaginn?

09:30 › 13. nóvember 2008

Elsku samstarfsmaður minn, Benedikt almáttugur, hjálpaði mér við að koma myndinni af okkur fórnfúsu skátastelpunum sem héldum Bíafraskemmtunina 1969, út úr rykugum netkimum Moggans (www.timarit.is), og gerði hana að þeirri ljósmynd sem hér birtist. Kristín Brynja er lengst til vinstri, þá sjálf himnaríkisdrottningin, síðan Margrét Rósa, Drífa og Sigga. (Mbl. 5. mars 1969, bls. 7)
 
Lyfjaskortur er greinilega farinn að gera vart við sig á Íslandi. Vinkona mín hefur þurft að taka inn hormónalyf undanfarin ár eftir veikindi og eggjastokkamissi, og er að mati læknisins ekki orðin næstum því nógu miðaldra til að fá að fara á breytingaskeiðið, enda bara 46 ára krakki. Hormónar koma í veg fyrir beinþynningu og hún þarf að gleypa þetta a.m.k. til fimmtugs. Hún fær alltaf þriggja mánaða skammt í einu og þegar hún ætlaði með lyfseðilinn í apótekið sitt nýlega kom í ljós að hormónategundin hennar (ein sú algengasta) er  uppseld hjá Lyf og heilsu og von á henni í fyrsta lagi um næstu mánaðamót. Hún hringdi í nokkur apótek á höfuðborgarsvæðinu en án árangurs og það var ekki fyrr en henni hugkvæmdist að hringja út í svartholið (allt fyrir utan 101 Reykjavík) að henni tókst að redda næstu þremur mánuðum. Apótek Vesturlands bjargaði henni en þar fengust þó bara einn eða tveir þriggja mánaða skammtar. Hún brunaði á Skagann eftir pillunum og ég græddi heimsókn í leiðinni.  Ég segi frá þessu opinberlega hér á blogginu mínu svo að hún hætti að tala við mig fram á næsta ár. Þannig spara ég heila jólagjöf. Þetta ókeypis kreppuráð er í boði himnaríkis

Hormónaskorturinn í landinu segir mér að fjöldi kvenna fer ótímabært og hættulega hratt á breytingaskeiðið með meðfylgjandi vanlíðan og GEÐILLSKU. Held að aukin harka eigi eftir að hlaupa í mótmælin á Austurvelli vegna þessa. Dularfulli brynvagninn hans Björns, sem DV hefur talað um, verður loksins sjáanlegur en ég efast stórlega um að vígahundarnir eigi séns í þessar konur ef þær fá ekki hormónana sína fljótlega.

Mér var bent á þetta, finnst það ansi alvarlegt:
Íslendingur búsettur í Danmörku skrifaði nýlega á bloggsíðu sinni:
„Nú er svo komið að íslensk banka- og kredidkort eru ónothæf, amk í Danmörku og Þýskalandi.
Ég er með smá upphæðir á íslenskum reikningum sem ég ætlaði að nota hérna úti þar sem ég er var að flytja, en þegar ég ætlaði að taka út úr hraðbönkum í Þýskalandi og í Danmörk var öllum kortum hafnað.  Það var ekki einu sinni hægt að nota þau til að kaupa eldsneyti í sjálfsölum.
Ég spurði þjónustufulltrúa minn í danska bankanum mínum út í þetta og hún sagði mér að allir danskir bankar væru búnir að loka fyrir peningafærslur til og frá Íslandi og þannig yrði það um ófyrirséða framtíð.
Ég fór því að spá í því í framhaldinu hvernig námsmenn og lífeyrisþegar hérna úti komi til með að lifa af á næstunni því ég hef ekki séð stafkrók um þetta í íslenskum fjölmiðlum hingað til og þó er liðin næstum vika síðan þetta var gert.  Greinilegt að stjórnvöldum og fréttamönnum er slétt sama um þetta ástand og fjalla því ekkert um það“



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?