ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Taylor og Thorne hætt saman - boldfærsla

18:52 › 12. nóvember 2008

Það er orðið skammarlega langt síðan ég hef boldað en margt og mikið gengur á hjá Forrester-fjölskyldunni núna.

Geðþekki geðlæknirinn Taylor og ekkillinn Thorne eru hætt saman. Ástæðan er andstaða litlu dóttur Thornes sem getur ekki sætt sig við Taylor sem stjúpu þar sem Taylor olli slysinu sem banaði mömmu hennar, Dörlu. Taylor leitar huggunar hjá Nick sem er þrælskotinn í henni og ég get alveg upplýst það hér og nú að þau ná saman.

Annað ástarsamband er í uppsiglingu þar sem blóðskyldleiki er sem betur fer ekki til staðar, Massimo bjargaði því öllu, en tvíburinn Phoebe, dóttir Ridge og Taylor, og Rick, sonur Brooke og Erics (sem er pabbi Ridge en þó ekki blóðfaðir (Massimo er það)). Vandamálið er að mamma hans og pabbi hennar (Brooke og Ridge) eru að fara að gifta sig enn einu sinni og slitnar ekki slefan á milli þeirra. Ridge hefur þó augu í hnakkanum þegar kemur að Phoebe, sem er bara 18 ára, og honum líst mjög illa á þennan samdrátt, hefur meira að segja beðið fyrri konu sína, Taylor, að taka Phoebe til sín, jafnvel þó að Taylor sé í ástarsorg ... þótt Nick haldi því nú fram að hún hafi ætlað að giftast Thorne vegna samviskubits yfir að hafa ekið á Dörlu. Hlutirnir eiga eftir að æxlast undarlega og ólíklegasta fólk mun enda saman. Ekki lesa áfram ef þið viljið vaða í villu og svíma um framhaldið næstu mánuðina.

Ég féll í smá trans og fékk til mín að Rick, sonur Brooke, og Taylor, mamma Phoebe, byrji saman einn góðan veðurdag. Áður mun þó Taylor eignast barn með Nick ... en fyrir mistök systur Ricks, hennar dr. Bridget, fær hún egg úr Brooke, mömmu Ricks og Bridgetar, og ber Brooke tilfinningar til eggsins og ég held að hún reyni að fá barnið. Nick fær þó forræðið yfir barninu þar sem Taylor byrjar að marínera sig í brennivíni á nýjan leik. Þarna kemur Rick til sögunnar og reynir að styðja konuna sem hefði orðið tengdamóðir hans ef Ridge hefði ekki hótað því í þættinum áðan að drepa hann ef hann færi yfir strikið með Phoebe. (Myndin hér að ofan er af Rick og Taylor úr framtíðinni ...)



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?